Sameinast í baráttu gegn einelti 17. mars 2010 12:15
Dagur án eineltis verður haldinn í fyrsta skipti á vegum Reykjavíkurborgar í dag og hefst með táknrænni athöfn á Tjarnarbakkanum klukkan 14. Þar verða nemendur úr nokkrum skólum borgarinnar samankomnir og mun barnakór taka lagið. Viðstaddir fá miða í hönd og verða beðnir um að skrifa jákvæð skilaboð út í samfélagið til að hengja á tré en að því loknu verður efnt til málþings í Ráðhúsinu."Ég flutti þá tillögu í borgarstjórn á haustmánuðum að það yrði einn dagur á ári helgaður einelti og þá jafnt einelti sem á sér stað í skólum, í íþrótta- og tómstundastarfi og á vinnustöðum fullorðinna. Tillagan var samþykkt og er ætlunin að gunnskólar, leikskólar og vinnustaðir borgarinnar taki höndum saman og hugi að því hvernig hægt er að gera vinnuumhverfið jákvæðara og þannig úr garði gert að einelti geti ekki þrifist," segir Marta Guðjónsdóttir, formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur.Málþingið verður helgað lausnum á einelti og munu fjölmargir fyrirlesarar taka til máls. Má þar nefna Gísla Árna Eggertsson, skrifstofustjóra íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar, sem fjallar um uppsprettu eineltis, Guðmund Kjerúlf, verkefnastjóra fræðsludeildar Vinnueftirlitsins, sem fjallar um félagslegt og andlegt vinnuumhverfi, Fannýju Gunnarsdóttur, námsráðgjafa Álftamýrarskóla, sem kynnir sýnishorn úr kvikmynd Viðars Freys Guðmundssonar, Einelti: ofbeldi meðal barna, og Ingibjörgu Baldursdóttur frá Liðsmönnum Jerico sem eru landssamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda.Marta segir það mannréttindi að líða vel á vinnustað hvort sem það er í vinnu eða skóla. Hún segir ýmsum aðgerðum hafa verið hrundið í framkvæmd á vegum Reykjavíkurborgar til að sporna gegn einelti og að margir leik- og grunnskólar hafi náð árangri auk þess sem umræðan um einelti hafi stóraukið þekkingu á afleiðingum þess."Borgarstjórn Reykjavíkur telur hins vegar mikilvægt að fylgja þessu eftir með afgerandi hætti og því var ákveðið að efna til samræmds átaks. Ráðgert er að dagurinn verði haldinn árlega héðan í frá en að vinnan fari fram á öllum vinnustöðum borgarinnar þess á milli. Við erum að vonast til að geta vakið enn frekar athygli á þessum vágesti og fengið almenning í lið með okkur til að vinna gegn honum," segir Marta.Marta er formaður starfshóps sem kom með tillögur að eineltisdeginum en allir pólitískir flokkar í borgarstjórn eiga fulltrúa í honum. "Hugmyndin er að hann verði alltaf að störfum, fylgist með og bregðist við ef á þarf að halda," segir hún.vera@frettabladid.is
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Sjá meira