Innlent

Óvenjumörg sjúkraflug flogin frá Akureyri til Reykjavíkur

Sjúkraflugvél flutti sjúkling frá Akureyri til Reykjavíkur í gær, sem er daglegur viðburður, en óvenju mörg sjúkraflug voru flogin í síðustu viku, eða samtals þrettán. Þar af um helmingur, vegna neyðartilvika.

Sjúkraflugvélarnar tvær eru staðsettar á Akureyri og fljúga sjúklingum af öllu landinu til Reykjavíkur. Á heimasíðu slökkviliðsins á Akureyri, sem sér um þetta flug, segir að mikilvægt sé að Reykjavíkurflugvöllur sé til staðar svo að sjúklingar komist sem fyrst í hendur sérfræðinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×