Ólík viðbrögð við vanskilum 17. mars 2010 02:00 Höfuðborgarsvæðið Kópavogur fól milliinnheimtufyrirtæki að sækja um 20,6 milljónir króna í vangoldnum leikskólagjöldum í fyrra. Mosfellsbær sendi mál fjögurra foreldra leikskólabarna og sex grunnskólabarna í lögfræðiinnheimtu.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa mjög mismunandi hátt á varðandi það hvernig þau nýta þjónustu innheimtufyrirtækja til að sækja vangoldna skatta og gjöld til íbúa sinna. Hvorki Mosfellsbær né Hafnarfjörður nýta milliinnheimtu hjá fyrirtækjum á borð við Intrum og Momentum heldur senda sjálfir ítrekanir uns vanskilum er vísað í hefðbundna lögfræðiinnheimtu. Mosfellsbær sendi mál 492 aðila í bænum, sem voru með samtals 34,7 milljónir króna í vangoldin fasteignagjöld, í hefðbundna lögfræðiinnheimtu. Mál fjögurra foreldra leikskólabarna, sem skulduðu samtals 225.000 krónur fóru í lögfræðiinnheimtu frá Mosfellsbæ. Einnig mál foreldra sex barna vegna vangoldinna skólamáltíða. Vanskil þeirra voru samtals 127.000 krónur. Fram kom í Fréttablaðinu fyrir skömmu að Reykjavíkurborg hefur nýtt innheimtufyrirtækin til að sækja um 11 prósent af fasteignagjöldum borgarbúa og hluta gjalda fyrir leikskólavist og skólamáltíðir hjá talsverðum hópi foreldra. Kópavogsbær sendi vangoldin leikskólagjöld fyrir 20,6 milljónir króna til innheimtufyrirtækis á árinu 2009. Ekki kemur fram í svari bæjarins hve stór hópur var í vanskilum. Ef miðað er við svipuð meðalvanskil og í Reykjavík má áætla að í Kópavogi um sé að ræða að minnsta kosti 300 foreldra leikskólabarna. Kópavogur sendi hvorki fasteignagjöld né skólamáltíðir til milliinnheimtu og ekki liggur fyrir hve háar fjárhæðir fóru þar til lögfræðiinnheimtu. Alls sendi bærinn 32 milljónir króna til milliinnheimtu, þannig að leikskólagjöldin eru um tveir þriðju af heildarfjárhæðinni. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Fleiri fréttir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Sjá meira