Segir kröfugreiðslu einsdæmi í gjaldþrotaskiptasögunni 17. mars 2010 20:26 Sigurður G. Guðjónsson.
Lögfræðingurinn Sigurður G. Guðjónsson, fékk greidda 200 þúsund króna kröfu í Fons fyrir nokkrum dögum síðan en sjálfur sagði hann í viðtali við Sölva Tryggvason á Skjá einum að það væri einsdæmi í gjaldþrotaskiptasögunni. Sjálfur keypti Sigurður kröfuna til þess að fá að vera viðstaddur kröfuhafafund félagsins en honum var vísað af brott af öryggisvörðum þegar hann ætlaði að mæta á fundinn. Sjálfur telur hann ástæðuna þá að þrotabúið talið sig hafa gert upp við hann. Sigurður segir að tveir einstaklingar hafi komið á skrifstofuna til hans og rétt honum umslag sem „hringlaði í" eins og hann orðar það sjálfur. Til útskýringar segir hann að í því hafi verið 200 þúsund krónur og eitthvað klink. Hann segir það einstakt að þrotabúið hafi brugðist svona fljótt við og það fyrir kröfuhafafundinn. Sjálfur veit Sigurður engin dæmi um slíka skilvirkni. Raunveruleg ástæða þess að Sigurður vildi vera viðstaddur kröfuhafafundinn var einfaldlega vegna þess að miklir peningar væru í þrotabúi Fons, eða hundruð milljóna. Sjálfur var Sigurður stjórnarformaður félagsins þegar það fór í þrot. Hann lætur svo að því liggja í viðtalinu við Sölva að skiptastjórar eigi það til að greiða sér óeðlilegar upphæðir. Hann telji að hann hafi fengið greitt til þess að koma í veg fyrir að hann gæti setið fundinn. Þá sagði Sigurður einnig í viðtalinu við Sölva að milljarðurinn sem Fons lánaði Jóni Ásgeiri Jóhannessyni hefði ekki verið gjafagerningur, eins og fram hefur komið, heldur hafi féð runnið inn í formúluliðið Williams og Hamleys. Greint hefur verið frá því að skiptastjóri Fons vilji rifta svokölluðum gjafagerning þar sem Fons virðist hafa lagt milljarð inn á einkareikning Jóns Ásgeirs, en engar skýringar hafa fengist á því hvers vegna hann fékk peninginn. Því vill skiptastjóri rifta gerningnum. Sigurður upplýsti hinsvegar í Spjallinu með Sölva að ekki hafi verið um gjöf að ræða og til stendur að leggja fram gögn til þess að sanna það. Að lokum gagnrýndi hann Seðlabankann harðlega fyrir þjóðnýtingu Glitnis en hann var stjórnarmaður Glitnis þegar hann fór í þrot. Sigurður segir að lögfræðingurinn Gestur Jónsson, sem var viðstaddur þegar ákvörðun þáverandi Seðlabankastjóra um þjóðnýtingu var kynnt, að hann hafi þurft að skrifa tilkynningu þeirra eftir minni fyrir stjórn Glitnis til samþykktar. Sigurður segir að Lárus Welding, þáverandi bankastjóri, hafi svo fengið skriflegt bréf frá Seðlabankanum þremur dögum eftir þjóðnýtingu. Það þurfti hann að fá til þess að sýna erlendum kröfuhöfum.
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Fleiri fréttir Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sjá meira