Innflutningur á vörum verði bannaður ef þær eru unnar í barnaþrælkun Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. mars 2010 20:00 Gylfi Magnússon segir að skoða þurfi hvaða lagaúrræði eru þegar til staðar til að fást við málið.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra telur rök vera fyrir því að banna innflutning á vörum sem framleiddar eru með barnaþrælkun. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis fjallaði í gær um þátt sem var sýndur á sjónvarpsstöðinni DR 2 í Danmörku. Í þættinum var fjallað um að afrísk börn eru seld mansali til Fílabeinsstrandarinnar þar sem þau eru svo látin þræla við framleiðslu á kakói. Börnin eru allt niður í átta ára að aldri. Kakóið er svo selt til fyrirtækja í efnameiri ríkjum. Miðað við það sem fram kom í danska sjónvarpsþættinum er Nestle fyrirtækið líklegast þekktasta dæmið um fyrirtæki sem kaupir kakó sem unnið hefur verið af börnum. Finnur Geirsson, forstjóri Nóa & Síríus, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að þeir birgjar sem fyrirtækið ætti viðskipti við byggði framleiðslu sína ekki á barnaþrælkun. Hann hefði áhyggjur af málinu því að svona lagað ætti ekki að líðast. Gylfi Magnússon segist ekki hafa kannað málið sérstaklega í tengslum við þennan sjónvarpsþátt. „Augljóslega eru málefnaleg rök fyrir því að banna innflutning á vörum sem eru framleiddar með aðferðum sem við teljum engan veginn við hæfi. Ég held að það sé nú enginn ágreiningur um það hér innanlands," segir Gylfi. Hann segir að athuga þurfi að hvaða marki núverandi löggjöf dugi til þess að taka á svona málum.
Tengdar fréttir Börnum þrælað út í kakóframleiðslu Næstum helmingurinn af kakói sem framleitt er í heiminum er unnið í barnaþrælkun á Fílabeinsströndinni. Þar er börnum þrælað út, allt niður í átta ára að aldri. Börnunum er í sumum tilfellum smyglað frá nærliggjandi löndum eins og Malí inn í Fílabeinsströndina. Þar er 40% af öllu kakói í heiminum framleitt og selt áfram til heimskunnra fyrirtækja á borð við Nestlé og Mars. 16. mars 2010 07:14 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Fleiri fréttir Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Sjá meira
Börnum þrælað út í kakóframleiðslu Næstum helmingurinn af kakói sem framleitt er í heiminum er unnið í barnaþrælkun á Fílabeinsströndinni. Þar er börnum þrælað út, allt niður í átta ára að aldri. Börnunum er í sumum tilfellum smyglað frá nærliggjandi löndum eins og Malí inn í Fílabeinsströndina. Þar er 40% af öllu kakói í heiminum framleitt og selt áfram til heimskunnra fyrirtækja á borð við Nestlé og Mars. 16. mars 2010 07:14