Fleiri börn greinast með drómasýki í Finnlandi 26. ágúst 2010 12:19 Hætt hefur verið að gefa bóluefnið Pandemix við svínaflensu tímabundið í Finnlandi eða þar til endanlegar niðurstöður liggja fyrir um tengsl þess við sjúkdóminn.
Fleiri börn hafa greinst með drómasýki á síðustu sex mánuðum í Finnlandi en áður þekkist, og vilja einhverjir rekja það til bólusetningu við svínaflensu. Hætt hefur verið að gefa efnið Pandemix tímabundið, eða þar til niðurstaða liggur fyrir. Drómasýki er taugasjúkdómur sem veldur ýmsum furðulegum svefntruflunum en sagt er frá málinu í finnska blaðinu, Helsingin Sanomat, í dag. Meðal annars hefur verið tekin ákvörðun um að hætta að gefa bóluefnið Pandemix við svínaflensu tímabundið, eða þar til endanlegar niðurstöður liggja fyrir um tengsl þess við sjúkdóminn. Á þriðjudag höfðu 15 tilfelli greinst meðal barna á aldrinum 5 til 16 ára síðan í desember, en þau áttu það öll sameiginlegt að sofna skyndilega. Að meðaltali greinast um sex tilfelli af drómasýki meðal ungs fólks og barna á ári hverju í Finnlandi en einnig hefur orðið vart við aukningu á sjúkdómnum í Svíþjóð eftir að bólusetning við svínaflensu hófst. Pekka Puska yfirmaður THL, sem er stofnun sambærileg Landlæknisembættinu, segir ákvörðunina um að hætta að gefa Pandemix fyrst og fremst vera varúðarráðstöfun. Þetta verði gert þar til búið verði að rannsaka málið. Félagsmálaráðherra Finnlands lætur hafa eftir sér í blaðinu í dag að þegar upp komi heimsfaraldur líkt og svínaflensa, verði að taka ákvörðun eins fljótt og auðið er, og erfitt sé að gera miklar rannsóknir áður en ákvarðanir séu teknar, því allt sé þetta spurning um tíma. Margar ástæður geta hinsvegar legið að baki þessari aukningu á drómasýki og hefur Marjo Renko sem fer fyrir hópi sérfræðinga í bóluefnum sagt að engin sönnun sé fyrir því að aukning á tilfellunum tengist bóluefninu. Hún búist ekki við að svo sé, enda séu þetta einungis vangaveltur.
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Tugþúsundir mótmæltu ICE Erlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Erlent Fleiri fréttir „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ X fyllist af gríni um Ísland/Grænland Þessi hönd er um sjötíu þúsund ára gömul Verði að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ Sjá meira