Innlent

Sameining stofnana rædd

Skipulagsbreytingar hjá Landlæknisembættinu verða til umræðu á fundi heilbrigðisnefndar Alþingis í dag.

Nefnd um breytta skipan stjórnsýslustofnana heilbrigðisráðuneytisins hefur lagt til sameiningu landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar.

Kemur landlæknir, Geir Gunnlaugsson, fyrir nefndina og gerir grein fyrir sjónarmiðum sínum.

Hann hefur áður upplýst að sameining gæti orðið til hagsbóta og hagræðingar.

Þuríður Backman, formaður heilbrigðisnefndar, segir bæði fjárhagsleg og fagleg sjónarmið höfð að leiðarljósi við verkið.- bþs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×