Innlent

Utanlandsferðum fækkar

tjaldstæði á Akureyri Meirihluti þjóðarinnar ferðast um landið og utanlandsferðum fækkar á sama tíma.
fréttablaðið/vilhelm
tjaldstæði á Akureyri Meirihluti þjóðarinnar ferðast um landið og utanlandsferðum fækkar á sama tíma. fréttablaðið/vilhelm fréttablaðið/vilhelm

Níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands á síðasta ári, samkvæmt nýrri könnun Ferðamálastofu. Þetta er hærra hlutfall en fyrri kannanir hafa sýnt.

Í könnuninni kemur fram að tveir af hverjum fimm ferðuðust bæði innanlands og utan og fjögur prósent eingöngu utanlands. Átta prósent ferðuðust hins vegar ekki neitt. Innan við helmingur landsmanna ferðaðist til útlanda sem gefur til kynna verulegan samdrátt í utanlandsferðum landsmanna.

Tveir af hverjum þremur fóru í þrjár eða fleiri ferðir innanlands og þrír af hverjum fjórum gistu sjö nætur eða lengur, en á heildina litið gistu landsmenn að jafnaði 14,3 nætur á ferðalögum innanlands árið 2009. Flestir ferðuðust í júlí og ágúst.

Sú gistiaðstaða sem var nýtt í hvað mestum mæli, eða af ríflega helmingi landsmanna, var gisting í tjaldi, fellihýsi eða húsbíl en auk þess gistu fjölmargir, eða tæpur helmingur, hjá vinum og ættingjum. Norður- og Suðurland eru þeir landshlutar sem eru vinsælastir.

Af þeirri afþreyingu sem greiða þarf fyrir nýttu flestir sér sund eða jarðböð en auk hennar borguðu fjölmargir sig inn á söfn og sýningar, fyrir veiði og leikhús eða tónleika.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×