Lánþegar gætu átt endurgreiðslu inni 16. febrúar 2010 06:00 Skuldsett upp í rjáfur? Úrskurður héraðsdóms um að myntkörfulán séu ólögmæt gæti haft áhrif á ekki bara bílalán heldur einnig á húsnæðislán. fréttablaðið/vilhelm
Héraðsdómurinn sem kvað myntkörfulán ólögmæt er vandaður og hefur víðtækt fordæmisgildi. Hann kann því að hafa áhrif á hvort tveggja bílalán og fasteignalán. Þessi sjónarmið heyrast úr stétt lögmanna. Einn þeirra, Einar Hugi Bjarnason, bendir á að dómurinn kunni að opna leiðir fyrir lántakendur til að fá endurgreiðslu og veki spurningar um hvað verði með gerða gjörninga, svo sem þegar fólk hefur breytt lánunum sínum úr erlendum og í krónulán. Talsmaður neytenda rakti í pistli fyrir áramót að þeir sem nú þegar hafa mátt þola nauðungarsölu eða aðra fullnustuaðgerð, gætu átt skaðabótarétt á hendur bönkum eða öðrum fjármálastofnunum, vegna ólögmætis lánanna. En það sem gæti haft áhrif á flesta er sá möguleiki að greiðslur af myntkörfulánum, sem hafa um það bil tvöfaldast síðan krónan féll, þurfi að endurskoða. Lánþegi gæti jafnvel átt endurgreiðslu inni. „Svo eru þeir sem hafa nú þegar greitt upp sín lán eða samið upp á nýtt. Þeir hafa fært lán sín yfir í íslensk lán á miklu verri kjörum en þeir hefðu ella gert,“ segir Einar Hugi, sem starfar á sviði skaðabótaréttar. Hann tekur undir með héraðsdómi. Úrskurðurinn sé vel rökstuddur og í samræmi við lögskýringargögn. Sú hugmynd hefur heyrst að dómstólar eigi að breyta myntkörfulánum í verðtryggð íslensk lán. Einar Hugi er ekki sannfærður um þá niðurstöðu. „Dómstólar munu líta til þessa verðtryggingarákvæðis. Það er það sem verður dæmt ógilt, en önnur ákvæði stæðu þá óbreytt,“ segir hann. Sem fyrr segir telur talsmaður neytenda að bankarnir geti orðið bótaábyrgir gagnvart neytendum, fallist Hæstiréttur á niðurstöðu héraðsdóms. Sumir neytendur gætu krafist bóta, hvort sem bankarnir vissu um ólögmæti lánanna eða ekki. Talsmaðurinn, Gísli Tryggvason, telur ekki útilokað að æðstu stjórnendur bankanna beri meðábyrgð á þessu tjóni. Viðmælendur úr hópi lögmanna taka undir þetta. Stjórnendur bankanna hafi sýnt gáleysi, sé rétt að þeir hafi ekki kynnt sér lögin betur. klemens@frettabladid.is Einar Hugi Bjarnason
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Fleiri fréttir Sannfærð um undanþágur í fiskveiði- og landbúnaðarmálum Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Sjá meira