Við erum komin að þolmörkum velferðarkerfisins, segir Jóhanna 16. febrúar 2010 18:29
Fjárlagagerð næsta árs mun taka gríðarlega á ekki síst vegna þess að við erum komin að þolmörkum þess sem velferðarkerfið þolir, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í umræðum um stöðu efnahagsmála á Alþingi í dag.Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði ríkisstjórnina hafa farið langt fram úr umsömdum skattahækkunum en frestað erfiðum aðhaldsaðgerðum. Þessvegna biði okkar hrikalegur niðurskurður í ríkisfjármálunum á þessu ári og því næsta, sem ríkisstjórnin hefði ekki svarað hvernig ætti að útfæra.Bjarni sagði ríkisstjórnina bregða fæti fyrir atvinnuuppbyggingu."Nú fer atvinnuleysisskrímslið að rísa upp úr sjó og stara í augu við menn hér í þinginu. Við verðum að fara að grípa til aðgerða fyrir fólkið í landinu," sagði Bjarni.Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vitnaði til nýrrar spár Seðlabankans um dýpri kreppu ef stórframkvæmdir tefðust. Spáin gerði ráð fyrir fimm prósenta samdrætti í ár, í stað þriggja prósenta, ef stórframkvæmdir tefðust frekar, og að atvinnuleysi yrði tveimur prósentum meira en annars hefði orðið."Við megum því ekki við frekari töfum ef við ætlum að hnekkja hrakspánum, eins og við gerðum í fyrra," sagði Jóhanna.Hún viðurkenndi þann vanda sem stjórnin stæði frammi fyrir í ríkisfjármálum, sem myndi taka gríðarlega á við fjárlagagerðina á næsta ári."Ekki síst vegna þess að við erum komin að þolmörkum þess sem velferðarkerfið þolir," sagði Jóhanna.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira