Aftur komin í björgunarstarf 6. janúar 2010 05:15 Mynd/Anton Brink
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að ákvörðun forsetans hafi sett marga þætti efnahagslífsins í uppnám. „Við erum aftur komin í björgunarstarf sem við töldum að við hefðum lokið að mestu og við héldum að við gætum farið að einbeita okkur að uppbyggingunni. Nú sjáum við viðbrögð alþjóðasamfélagsins; lánshæfismatið er komið í ruslflokk, vaxtalækkunarferlinu er stefnt í óvissu, áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og gengisþróuninni er stefnt í óvissu, þetta hefur áhrif á skuldatryggingaálagið og við vitum ekki nema þetta geti haft áhrif á frestun lána frá Norðurlöndunum. Þannig að það er ýmislegt í húfi og nú erum við að fara yfir stöðuna og sjá hvernig hægt verður að bjarga því sem bjargað verður," sagði Jóhanna í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. Hún ræddi ekki við forsetann í gær en þau töluðust við í síma að kvöldi mánudagsins. „Hann ætlaði að láta mig vita áður en hann kynnti sína ákvörðun en ég fékk ekki niðurstöðu frá honum fyrr en eftir klukkan ellefu, eftir að hann var búinn að kynna sína ákvörðun." Hún segist hafa gert forsetanum fullkomna grein fyrir mati sínu og fjármálaráðherra á því hvaða áhrif það hefði ef hann synjaði lögunum staðfestingar. Hann hafi einnig haft undir höndum gögn, unnin af sérfræðingum í stjórnarráðinu, yfirfarin af Seðlabankanum. „Hann hafði mat okkar á þessari stöðu; hvað gæti gerst í framhaldinu og því miður höfum við á síðustu mínútum og klukkustundum séð það allt verða að veruleika. En við vonum að það sé hægt að lágmarka þennan skaða eins og kostur er." Spurð hvort hún sé staðráðin í að halda áfram störfum segir Jóhanna ekki annað í kortunum núna. „Við þurfum ekki á stjórnarkreppu að halda í augnablikinu." Hún vill ekki svara að svo stöddu hvort ríkisstjórnin fari frá verði lögunum hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún vill heldur ekki svara hvort hún telji að með ákvörðun sinni hafi forsetinn veikt ríkisstjórnina. „Ég vil ekki tjá mig um það. Forsetinn hefur þennan rétt, ég dreg hann ekki í efa og við verðum bara að vinna úr þeirri stöðu sem hann hefur sett okkur í." bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Fleiri fréttir Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Sjá meira