Forsetinn hafnaði fundi með forsætisráðherra Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. janúar 2010 15:56 Ólafur Ragnar Grímsson vildi ekki funda með Jóhönnu. Mynd/ Anton Brink.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra óskaði eftir því bréflega við forseta Íslands síðdegis á mánudaginn að eiga fund til að ræða við hann um væntanlega ákvörðun hans um afdrif Icesave-laganna. Forsetinn hundsaði þessa beiðni forsætisráðherra, eftir því sem fram kemur á fréttavefnum Pressunni. Pressan segir að bréf forsætisráðherra hafi fylgt með greinargerð forsætisráðuneytisins til forsetans um mögulegar afleiðingar þess að synja Icesave-lögunum staðfestingar. Í greinargerð þeirri kemur meðal annars fram að Bretar og Hollendingar hafi mikið um það að segja hvort ríkisábyrgðin um Icesave komi yfirleitt til þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi. Þeir geti litið svo á að frestir séu útrunnir og þannig fallið frá samningum sem lögin fjalla um. Í greinagerðinni kemur fram að jafnvel megi líta svo á að Bretar og Hollendingar hafi mikla hagsmuni af því að Íslendingar hafni lögunum. Eins og fram kom á Vísi í gær fullyrðir Jóhanna að hún og Ólafur hafi orðið ásátt um að Ólafur léti hana vita um afstöðu sína í Icesave málinu áður en hann tilkynnti hana í fjölmiðlum. Af einhverjum ástæðum hafi ekki orðið af því.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira