Innlent

Björgunarsveitir ræstar út vegna reyks á hafi

Björgunarsveitir á Suðurnesjum hafa verið kallaðar út vegna reyks sem sást á hafi norður af Njarðvík í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum liggja ekki nánari upplýsingar fyrir að svo stöddu.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk í kvöld tilkynningu frá sjófaranda sem varð var við reyk Austur af Garðskaga. Stjórnstöðin kallaði samstundis út björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Sandgerði og Hafnarfirði.  Auk þess björgunarbát Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Reykjanesbæ og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Einnig var varðskipi Landhelgisgæslunnar beint á svæðið en skipið var statt vestur af Reykjanesi.

Ekki er vitað um að skip eða bátar séu á þessum slóðum og er því talið nauðsynlegt að kanna málið nánar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×