Innlent

Fullnaðarsigur Breta

Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópuseturs Háskólans á Bifröst.
Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópuseturs Háskólans á Bifröst. Mynd/Stefán Karlsson
Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópuseturs Háskólans á Bifröst, segir eðlilegt að Bretar séu glaðir með Icesave samkomulagið enda hafi þeir unnið fullnaðarsigur á Íslendingum í málinu.

Samkomulag Íslands við Bretland og Holland vegna Icesave reikningana var undirritað í fyrrinótt. Samkvæmt því munu Bretar aflétta hryðjuverkalögunum 15. júní og þá mun Tryggingasjóður innstæðueigenda ábyrgjast innstæður eigenda reikningana upp að því lágmarki sem tilskipun Evrópusambandsins gerir ráð fyrir. Samkvæmt því ábyrgist sjóðurinn 650 milljarða íslenskra króna vegna Icesave í löndunum tveimur.

Bretar bæði með axlabönd og belti

„Athygli vekur að Íslendingar bera alla áhættuna en Bretar ganga frá samningaborðinu með bæði axlabönd og belti," segir Eiríkur á vefsíðu sinni. Eftir bankahrunið og beitingu hryðjuverkalaganna skrifaði Eiríkur greinar um málið sem birtust í breskum fjölmiðlum.

„Eins og ég hef áður sagt á þessum vettvangi og víðar þá fengu íslensk stjórnvöld gullið tækifæri til að varpa ábyrgðum á Icesave-skuldunum yfir á bresk stjórnvöld um leið og þau beittu okkur hryðjuverkalögum og frystu eignir bankans í Bretlandi," segir Eiríkur og bætir við að lögin hafi verið kolólögleg aðgerð sem brutu gegn ESS-samningunum og fleiri alþjóðalögum.

Þjóð í skuldaklafa



Stjórnmálafræðingurinn segir óskiljanlegt að íslensk stjórnvöld hafi samþykkt að skuldbinda þjóðina í skuldaklafa sem augljóslega sé á ábyrgð bresku ríkisstjórnarinnar.

Eiríkur bendir á að málið sé ekki bara lagalegt álitamál heldur einnig pólitísk. Alþjóðastjórnmál lúti öðrum lögmálum heldur en innanlandsstjórnmál og þjóðarréttur sé mun loðnara fyrirbæri en landsréttur.

Krókur á móti bragði

„Á þessum grunni hef ég haldið því fram að þegar Bretar beittu Ísland hryðjuverkalögunum hafi orðið til tækifæri fyrir íslensk stjórnvöld, - að koma með krók á móti bragði og færa fram þau rök, að þar með hefðu bresk stjórnvöld tekið yfir skuldbindingar þeirra fjármálafyrirtækja sem þau tóku traustataki með ólögmætum hætti," segir Eiríkur.

Að lokum segir hann: „En nú er semsé búið að reyra skuldaklafann pikkfastan á bak allra Íslendinga. Ég verð að viðurkenna að mér þykir svolítið erfitt að fagna slíkri niðurstöðu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×