Vissi að fylgi Sjálfstæðisflokksins væri ofmetið í Vestmannaeyjum 26. apríl 2009 11:42 Róbert Marhsall.
Róbert Marshall er nýr þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Hann segist mjög þakklátur með þann stuðning sem honum er sýndur og segist hafa vitað að fylgi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum hafi verið ofmetið. Því hafi hann einbeitt sér þar síðustu vikuna fyrir kosningar og það hafi skilað sér. Hann vill fara strax í aðildarviðræður við Evrópusambandið og vill stuttar stjórnarmyndunarviðræður. „Ég bjóst nú alveg við að ég yrði inni en maður veit svosem aldrei. Ég reyndi að fara sem víðast og tala við sem flesta og kynna stefnu flokksins. Við vorum í þeirri einkennilegu stöðu í þessari kosningabaráttu að andstæðingurinn talaði meira um okkar stefnu en sína og beitti miklum hræðsluáróðri. Við gættum þess hinsvegar allan tímann að ræða okkar málefni sem skilaði þessum árangri á endanum," segir Róbert. Hann segir úrslit kosninganna vera skýr skilaboð til stjórnvalda um að þjóðin vilji fara strax í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Menn geti síðan farið með þann samning í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Stjórnarmyndunarviðræðurnar eiga að taka skamman tíma það er enginn tími fyrir brúðkaupsdaga sem eru liðnir, við tókum þá út á þessum áttatíu dögum. Nú er bara að spýta í lófana og halda áfram." Nokkuð hefur verið rætt um útstrikanir á listum víða og hefur nafn Björgvins G. Sigurðssonar efsta manns á lista flokksins í Suðrukjördæmi verið nefnt þar. Róbert telur hinsvegar að staða Björgvins sé sterk. „Ég var nú bara að vakna og hef engar tölur séð varðandi það. En það er um stöðu Björgvins að segja að í þessum kosningum hefur hann farið í gegnum opið prófkjör þar sem allir gátu tekið þátt. Hann síðan sem oddviti listans hefur unnið mikinn sigur og bætt við sig heilum þingmanni. Því held ég að það sé skoðun kjósenda á hans framgöngu."
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Sjá meira