Gálgafrestur frystra myntlána 9. febrúar 2009 04:00 Mörg þúsund bílar á götum landsmanna eru í eigu fjármögnunarfyrirtækja og bílstjórarnir greiða af þeim reglulega. Fréttablaðið/Anton
Talsmenn helstu fjármögnunarfyrirtækja, sem hafa lánað til bílakaupa síðustu ár, segjast enn ekki hafa þurft að taka marga bíla aftur af skuldurum í vandræðum. Verst stöddu skuldunautarnir hafi kosið að frysta lán sín um tíma. „Nei, við höfum ekki þurft að gera neitt óeðlilega mikið af því. Þetta er ekki komið fram ennþá. Við erum að reyna að taka bílana ekki og höfum því fryst lánin til fjögurra mánuða. Að því loknu ætlum við að frysta þau í fjóra mánuði til viðbótar,“ segir Helga Hermannsdóttir hjá Avant. Fyrirtækið láti sér vaxtagreiðslur duga á meðan. Um 4.600 manns hafi fryst lán, af um 12.000 skuldurum. Helga sagðist ekki hafa nákvæma tölu um bíla sem hafa verið endurheimtir eftir efnahagshrunið, en skaut á að þeir væru innan við hundrað talsins. En ástandið gæti versnað þegar fram vindur: „Margt fólk er á uppsagnarfresti og ekki enn orðið tekjulaust,“ segir Helga. Jóhann Fannar Sigurðsson hjá Lýsingu segir að um 3.500 manns hafi fryst bílalán sín til þriggja mánaða og hafi þá greitt helming afborgana. Eftir fyrstu frystingu sé í boði að greiða 75 prósent þeirra, en ekki allir nýti sér það. Hann gefur ekki upp hve margir bílar hafi verið teknir af fólki, en segir í kringum fimmtíu bíla. Lýsing sé skráður eigandi að um 20.000 bílum. Haraldur Ólafsson hjá SP-fjármögnun segir að endurheimt bíla hafi vissulega aukist en margir hafi fryst afborganahluta lána sinna og greiði því lægri fjárhæð mánaðarlega en þeir greiddu fyrir hrunið. „Við erum ekki með fullt plan af bílum og hlutfallslega er þetta lítið, miðað við að við höfum lánað í um 24.000 bílum,“ segir Haraldur. Hann hefur þó ekki nákvæmar tölur um endurheimtur. Á heimasíðu SP eru 32 bílar til sölu. Frysting lána hjá þeim sem fyrst fengu hana renni út 1. mars hjá SP, en þá verði farið í annars konar skuldbreytingu og varanlegri, eins og hann orðar það. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira