Sport

United aftur á toppinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stephen Ireland brýtur hér á Dimitar Berbatov í upphafi leiksins.
Stephen Ireland brýtur hér á Dimitar Berbatov í upphafi leiksins. Nordic Photos / Getty Images

Manchester United endurheimti í dag toppsæti ensku úrvasdeildarinnar með 2-0 sigri á Manchester City.

United er með 83 stig, þremur meira en Liverpool og á þar að auki leik til góða. Sá leikur er gegn Wigan á útivelli á miðvikudaginn.

Cristiano Ronaldo skoraði fyrra mark United í leiknum á átjándu mínútu. Markið kom beint úr aukaspyrnu.

Carlos Tevez skoraði síðara markið á lokamínútu fyrri hálfleiksins með glæsilegu skoti utan teigs. Hann hafði þá verið nýbúinn að skjóta í stöng.

Dimitar Berbatov kom að báðum mörkunum en Stephen Ireland braut á honum þegar að aukaspyrnan var dæmd sem Ronaldo skoraði úr. Þá átti hann stoðsendinguna á Tevez þegar sá síðarnefndi skoraði.

Robinho fékk besta færi City á 51. mínútu. Þá fékk hann boltann inn í teig United og var í góðu skotfæri en skaut framhjá.

Alex Ferguson, stjóri United, tók svo Cristiano Ronaldo af velli á 59. mínútu en sá síðarnefndi var allt annað en sáttur við það og lét skoðun sína bersýnilega í ljós.

Edwin van der Sar, markvörður United, varði svo vel á lokamínútum leiksins og Tevez komst einnig nálægt því að skora sitt annað mark í leiknum er hann skallaði í stöng af afar stuttu færi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×