Segja þjóðréttarlega stöðu Íslands í hættu 18. júní 2009 09:28
InDefence hópurinn segja ekkert skjól vera í Icesave samningunum og að þjóðréttarleg staða Íslands sé í hættu vegna þeirra. Hópurinn hefur undir höndum samning hollenska ríkisins annars vegar og Tryggingasjóðs innistæðueigenda, fjárfesta og íslenska ríkisins hins vegar um lausn Icesave deilunnar. Fram kemur í tilkynningu að fulltrúar InDefence hópsins hafi kynnt sér efni samningsins og geti ekki látið hjá líða að eftirfarandi komi fram: „1) Það er álit lögmanna InDefence hópsins að eignir íslenska ríkisins hvar sem er í heiminum geti verið til tryggingar skilvísri greiðslu lánasamningsins. Þetta þýðir með öðrum orðum að allar eignir íslenska ríkisins eru lagðar að veði. Samningurinn tryggir að Íslendingar geta ekki borið fyrir sig friðhelgi fullveldis kjósi Hollendingar að ganga að eignum ríkisins til fullnustu samningnum. Samningurinn kemur þannig í veg fyrir að íslenska ríkið geti varið eigur sínar í krafti fullveldis. 2) Indefence hefur alvarlegar áhyggjur af ýmsum öðrum ákvæðum samningsins, m.a. rúmum vanefndarúrræðum hollenska ríkisins. Þetta þýðir m.a. að hollenska ríkið getur gjaldfellt samninginn í heilu lagi, jafnvel á fyrstu sjö árum samningstímans. Takmarkað hald er því í hinu sjö ára skjóli. 3) Innihald samningsins felur í sér að þjóðréttarleg staða Íslands skerðist með mjög alvarlegum hætti. Í ljósi þessa hefur Indefence í hyggju að leita eftir áliti erlendra lögmanna. 4) Ljóst er að samningurinn brýtur í bága við þau viðmið sem samninganefndir landanna þriggja voru bundnar af og fram koma í viðauka við þingsályktun Alþingis frá 5. desember 2008. 5) InDefence hvetur ríkisstjórn Íslands til að sinna skyldum sínum við borgara þessa lands og inn þingi og þjóð án tafar."
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Fleiri fréttir Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Sjá meira