Fjölskylduhjálp Íslands lokar í sumar Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 10. júní 2009 18:21 Ásgerður Jóna Flosadóttir.
Fjölskylduhjálp Íslands lokar frá og með 24. júní til 12. ágúst. Ástæðan er sú að sjálfboðaliðar sem starfa við fjölskylduhjálpina þurfa frí eins og annað fólk. Fjölskylduhjálpin hefur farið fram á að ríkið styrki sig um hálft stöðugildi sem hefði getað haldið starfseminni gangandi í allt sumar. Ekki hefur verið orðið við þeirri bón. „Já almáttugur, auðvitað hefðum við viljað sleppa því að loka. En þú verður að athuga það við erum öll í sjálfboðavinnu," segir Ásgerður Jóna Flosadóttir hjá Fjölskylduhjálp Íslands. Hún segir fjölskylduhjálpina hafa reynt að safna peningum fyrir hálfu stöðugildi. „Við hefðum þá getað haft opið í allt sumar en kannski tekið á móti færra fólki, en þó einhverjum," segir Ásgerður og viðurkennir að þörfin hafi í raun aldrei verið brýnni. Hún segir að starf Fjölskylduhjálpar Íslands sé ekki metið að verðleikum. „Við erum að láta um 300 fjölskyldur fá mat sem dugir í allavega tvo daga. Svo ef við miðum við að 2,5 séu í hverri fjölskyldu, sem er hóflega áætlað, geturðu rétt ímyndað þér hversu margir njóta góðs af þessu." Aðsóknin í fjölskylduhjálpina er gríðarleg að sögn Ásgerðar. „Það kom hálfpartinn til átaka við úthlutun í dag," segir Ásgerður. Fjölskylduhjálpin fær tvær milljónir á ári frá Fjárlaganefnd alþingis og tvær milljónir frá Reykjavíkurborg sem rukkar að vísu fjölskylduhjálpina um 1300 þúsund krónur í húsaleigu á ári. Húsið sem Fjölskylduhjálpin notast við hafði þó staðið autt um nokkurt sinn þegar hún hóf að notast við það. Þá styrkti N1 Fjölskylduhjálpina um rúmar tvær milljónir á dögunum. Allir þessir peningar fara í matarkaup og segir Ásgerður það ekki koma til greina að nota þá til að greiða starfsmanni laun. „Það fer allur peningur í mat." Ásgerður segir að útlitið sé dökkt fram undan, Fjölskylduhjálpin sé til að mynda búin að tæma lyfjasjóð sinn en vonast er til að peningar safnist í hann í fríinu. Aðspurð hvert fólk geti leitað í sumar bendir Ásgerður á Rauða Krossinn, sem þó takmarki sínar heimsóknir við fjögur skipti á ári, og mæðrastyrksnefnd, sem hún telur þó að sé einnig á leið í frí. Hún segir því ljóst að aðgerða yfirvalda sé þörf.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Sjá meira