Undirskriftir gegn sorpi á Suðurlandi 13. júní 2009 03:45 Þetta er meðal þess sem íbúar í nágrenni sorpurðunarstaðarins í Kirkjuferjuhjáleigu vilja losna við úr umhverfinu.
Íbúar í nágrenni sorpurðunarstaðar Sorpstöðvar Suðurlands í landi Kirkjuferjuhjáleigu hafa hafið undirskriftasöfnun gegn framlengingu starfsleyfis stöðvarinnar á umræddu svæði. Undirskriftirnar verða sendar Umhverfisstofnun. Nú liggur fyrir tillaga að starfsleyfi fyrir sorpstöðina. Hún gerir ráð fyrir að leyfi verði veitt til urðunar á sorpi í Kirkjuferjuhjáleigu næstu sextán árin. Magnið sem urða má á ári er 30 þúsund tonn og því væri verið með samþykkt tillögunnar að veita heimild til urðunar á 480 þúsund tonnum sorps. „Við íbúar í næsta nágrenni Sorpstöðvar Suðurlands mótmælum harðlega því að veitt sé starfsleyfi til lengri tíma en til 01.12.2009 og þeim yfirgangi gagnvart okkur sem felst í tillögunni“, segir meðal annars í athugasemdum íbúanna, en 1. desember næstkomandi rennur leyfið út. Íbúarnir benda á að sorpstöðin hafi margbrotið gildandi deiliskipulag frá 1993. „Engin hæðamörk deiliskipulagsins hafa verið virt og ljóst er að það magn sorps sem þegar er komið á svæðið er langt umfram það sem skipulagið gerir ráð fyrir…“ Þá minna íbúarnir á nálægð sorpstöðvarinnar við laxveiðiá, blómleg landbúnaðarhéruð, útivistarparadís og þéttbýli og áhrif hugsanlegrar mengunar þar á. Loks benda þeir á að úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hafi kveðið á um að óheimilt sé að breyta skipulagi svæðisins þar sem þar hafi verið framkvæmt í ósamræmi við skipulag, fyrr en hin ólöglega bygging, eða byggingarhluti, hafi verið fjarlægð, jarðrask afmáð og starfsemi hætt. Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri í sveitarfélaginu Ölfusi, segir að áætlanir hefðu verið uppi um að Vesturland, höfuðborgarsvæðið, Reykjanes og Suðurland yrðu saman í einu sorpsamlagi. Komið yrði á fót flokkunar- og umhleðslustöð sorps á Suðurlandi. Þessi áætlun væri nú úr myndinni þar sem tillaga þar um hefði nýverið verið felld á aukaaðalfundi í Sorpstöð Suðurlands. Hins vegar hefði á fundinum verið ákveðið að stofna starfshóp sem yrði skipaður fulltrúa hvers aðildarfélags Sorpstöðvar Suðurlands. Hann skuli leita staðsetningar fyrir nýjan urðunarstað í stað Kirkjuferjuhjáleigu. „Eftir að mál hafa skipast svona þarf að finna nýjan urðunarstað,“ segir Ólafur Áki. „Kirkjuferjuhjáleiga er ekki inni í myndinni því ég tel að ekki sé pólitískur vilji fyrir því.“
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Sjá meira