Segir reynt að hrekja sig af landareigninni 22. desember 2009 03:45 Stefanía segir hafa borið á lungnaveiki og jaxlaveiki í kindunum, sem þýðir að þær nýti ekki fóðrið. „
Undirrótin að öllum þessum látum er sú að vissir menn vilja okkur héðan í burtu,“ segir Stefanía Inga Lárusdóttir, bóndi á Stórhóli í Djúpavogshreppi. Málefni hennar hafa verið mikið til umfjöllunar að undanförnu í kjölfar sáttar sem fulltrúi sýslumanns á Eskifirði gerði við hana í framhaldi af ákæru um vanhöld í fjárbúskap á jörðinni. Stefanía segir að þau klögumál og í sumum tilvikum ósannindi sem þar hafi komið fram séu fyrst og síðast sprottin af hreinum illvilja og óvild í garð heimilis hennar, sem staðið hafi um árabil. Allt hafi verið tínt til, til þess að klekkja á því. Stefanía segir að aldrei hafi skepna verið svelt á Stórhóli. „Við gefum tvisvar á garðann á dag og gefum vel. Nú erum við búin að koma okkur upp sjálffóðrun, sem léttir vinnuna við féð geysimikið.“ Spurð um dauða og vanhöld í kindum í fjárhópnum segir Stefanía ástæðu fyrir þeim. „Það hefur einstaka kind verið að deyja úr eins konar lungnaveiki undanfarið. Í fyrrahaust óskaði ég eftir að sprauta féð en var þá bent á, af dýralækni, að samkvæmt sænskri rannsókn borgaði það sig ekki því þetta væri rándýrt og afar fáar kindur dræpust úr þessu, sem er rétt. Sjö kindur af öllum hópnum eru nú ekki stórt hlutfall. En ég hefði betur haldið bólusetningunni til streitu vegna þess að þetta stendur fénu fyrir þrifum. Þá hefur borið á jaxlaveiki í kindunum, sem þýðir að þær nýta ekki fóðrið. Bæði lungnaveikin og jaxlalos eru þekkt í Álftafirði.“ Aðspurð segir Stefanía að til hafi staðið að fækka fénu, sem er nú á annað þúsund talsins. „En ég hefði viljað breyta því sem ég ætla að breyta án þess að til þessara leiðinda þyrfti að koma,“ segir hún. „Og vissulega eru þau ekki hvetjandi til breytinga.“ Stefanía segir að sýslufulltrúinn hafi lagt fram áttatíu þúsunda króna sáttatillögu og hún hafði gengið að henni. „Ég samþykkti hana, því helst af öllu vil ég fá að vera í friði og ekki í stríði við neinn. Ég tel að með henni hafi ég verið að kaupa mér frið,“ segir hún. „En það breytir því ekki að það er afar sárt hvernig búið er að fara með okkur á margan hátt og hvernig búið er að vega að mannorði mínu á röngum forsendum.“ jss@frettabladid.is
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir Lögreglan í aðgerð á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira