Segir af sér stjórnarmennsku vegna rannsóknar sérstaks saksóknara Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. desember 2009 16:30
Jón Kr. Sólnes, stjórnarmaður í Byr, hefur ákveðið að láta af stjórnarstörfum á meðan á rannsókn málsins stendur og kalla inn varamann í sinn stað. Ástæðan er sú að við rannsókn á málefnum Exeter Holdings hefur hann, sem stjórnarmaður í Byr gefið skýrslu hjá Sérstökum saksóknara. „Þrátt fyrir að ég telji mig hafa hreinan skjöld í þessu máli, hef ég, eins og aðrir sem tóku þátt í afgreiðslu málsins, fengið réttarstöðu grunaðs. Af þeim sökum hef ég óskað eftir að láta af stjórnarstörfum á meðan á rannsókn málsins stendur og kalla inn varamann í minn stað," segir Jón Sólnes í yfirlýsingu vegna málsins. Hann segir tildrög stöðunnar sem hann er kominn í vera þá að 19. desember í fyrra var hann kallaður inn á stjórnarfund í Byr sparisjóði sem varamaður. Á fundinum voru meðal annars til umfjöllunar málefni Exeter Holdings (Tæknisetur Arkea) þar sem samþykkt var að framlengja yfirdráttarláni félagsins, sem sagt var í eigu MP fjárfestingarbanka og lánamörk hækkuð til þess að mæta vaxtagreiðslum. Í umræðum hafi komið skýrt fram að ekki væri ætlunin að nýta þennan reikning í bráð en atburðarás næstu vikna leiddi í ljós að við það var ekki staðið. „Að mínu áliti er algjörlega nauðsynlegt að fullkomið traust ríki í garð allra þeirra sem koma að endurreisn Byrs sparisjóðs. Þess vegna vil ég víkja til hliðar á meðan ég hef umrædda réttarstöðu. Ég vil nota tækifærið og þakka samstarfsfólki fyrir þann áfanga sem náðst hefur í endurreisn sparisjóðsins. Sjálfur mun ég, hér eftir sem hingað til, leggja mitt af mörkum til þess að ljúka megi þeirri vinnu," segir Jón.
Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Sjá meira