Akranes stendur af sér hrunið 21. desember 2009 03:00 Gísli bæjarstjóri segist stoltur yfir því hversu vel hafi gengið. Starfsfólk bæjarins eigi stóran hlut í því, en öll laun yfir 300.000 krónum voru skert eftir hrunið.fréttablaðið/GVA
Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir næsta ár er jákvæð og var í vikunni samþykkt af bæjarstjórn. Áætlað eiginfjárhlutfall er 45 prósent. Ráðist verður í verklegar framkvæmdir fyrir 120 milljónir. Áætlaðar langtímaskuldir eru um 2,5 milljarðar króna, en áætlað eigið fé 4,2 milljarðar. „Okkar staða er mjög góð. Við byrjuðum að gera ráðstafanir strax í fyrrahaust þegar hrunið gekk yfir og stoppuðum þær framkvæmdir sem hægt var að stoppa. Við fórum í hagræðingaraðgerðir og fengum starfsfólkið og sviðin og skólana til að vinna með okkur. Ég tel að það sé ríkasta ástæðan fyrir því hvað við komumst vel út úr þessu,“ segir Gísli S. Einarsson bæjarstjóri. Farið hafi verið í gegnum allan rekstur bæjarins og sú skoðun hafi skilað verulegum hagnaði. „Við erum því með handbært fé upp á 155 milljónir í stað þrjátíu, sem við gerðum ráð fyrir. Við munum greiða niður skuldir fyrir 286 milljónir en tökum engin lán,“ segir hann. Spurður um erlendar skuldir segir hann rétt að ekki hafi verið gengið frá afleiðulánum við Landsbankann. Hins vegar telji hann ekki að gerð verði krafa um að greiða þau upp. Þau lán eru í fyrrgreindri heildartölu skulda, 2,5 milljarðar.- kóþ
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira