Sektaður um tvær milljónir fyrir hvíldarleysi 21. desember 2009 14:43 Vörubifreið. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Vörubílstjóri var dæmdur til þess að greiða 2,1 milljón fyrir að virða ekki lögbundin hvíldartíma vörubílstjóra ítrekað. Það var Héraðsdómur Suðurlands sem dæmdi manninn til þess að greiða sektina en upphaf málsins má rekja til apríl á síðasta ári. Þá höfðu starfsmenn Vegagerðarinnar afskipti af vörubílstjóranum. Þeir tóku gögn af rafrænu ökumannskorti sem var í vörubílnum og við nánari skoðun kom í ljós að bílstjórinn hafði ekki hvílt sig í fimmtán skipti. Bílstjórinn krafðist sýknu meðal annars af því að hann hélt því fram að engin rannsókn hefði farið fram hjá Vegagerðinni eða lögreglunni en lögreglan hefði ekki rannsakað sérstaklega hvaða farm hann hefði verið að flytja né akstursleiðir og akstursskilyrði og þannig sinnt rannsóknarskyldu sinni sem leiða mætti í ljós sekt eða sýknu. Þá hélt hann því fram að leiðbeiningar með ökuritanum hafi verið á ensku og hann hefði ekki skilið þær til fulls. Þess vegna hefði hann ekki slökkt á ökuritanum þegar hann var í hvíld. Við ákvörðun refsingarinnar var litið til þess að maðurinn hafði ítrekað ekið þungaflutningabifreið sinni dögum saman án þess að taka lögboðna hvíld. Með þessari háttsemi sinni hefði maðurinn aukið á þá hættu sem stór og þung flutningatæki skapa á vegum úti með því að aka allt upp í rúmlega ellefu klukkustundir samfleytt án þess að taka sér nokkra hvíld. Greiði maðurinn ekki sektina þarf hann að sæta fangelsi í sextíu daga.
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira