Þrír vilja fyrsta sætið hjá Framsókn 4. febrúar 2009 12:04 Friðrik Jónsson.
Þrír sækjast eftir fyrsta sætinu á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í næstu þingkosningum. Friðrik Jónsson, sérfræðingur í alþjóðasamskiptum og formaður Framsóknarfélagsins á Akranesi, sækist eftir því að leiða listann. Áður höfðu Guðmundur Steingrímsson og Gunnar Bargi Sveinsson, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði, líst yfir að þeir stefna á fyrsta sætið. Magnús Stefánsson, eini þingmaður flokksins í kjördæminu, tilkynnti nýverið að hann hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri. „Ég sækist eftir að leiða lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Ég býð fram krafta mína, ekki aðeins í þágu Norðvesturkjördæmis heldur í þágu landsins alls í ljósi þess mikla uppbyggingarstarfs sem fyrir höndum er,“ segir Friðrik í tilkynningu. Ný og gegnsæ vinnubrögð mikilvæg Hann segir erfitt verk fyrir höndum. „Nauðsynlegt er að byggja upp traust á stjórnvöldum og stofnunum samfélagsins og kallar það á ný og gegnsæ vinnubrögð. Mikilvægt er að vel takist til. Við höfum ekki efni á mistökum. Sá kvóti er uppurinn. Nú sem aldrei fyrr er þörf á uppbyggingu og endurreisn alþjóðlegra tengsla landsins, svo bætt verði fyrir þau mistök sem gerð voru í samskiptum við okkar helstu vinaþjóðir. Aldrei aftur megum við finna okkur á alþjóðlegu bersvæði, óstudd og óvölduð.“ Friðrik segist hafa í fjórtán hafa notið þeirrar gæfu að vinna í þjónustu þjóðarinnar innan íslenskrar stjórnsýslu, bæði innanlands og erlendis. „Það hefur gefið mér dýrmæta innsýn og fjölbreytta reynslu sem mun nýtast vel til þeirra átaksverkefna sem framundan eru.“ Starfar hjá Varnarstofnun Í dag starfa Friðrik sem verkefnis- og sviðsstjóri hjá Varnarmálastofnun Íslands. Hann Hóf störf í utanríkisráðuneytinu í janúar 1996. Var m.a. starfsmaður sendiráðs Íslands í Washington D.C. frá 1998 til 2002 og staðgengill sendiherra við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn 2002 til 2006. Áður starfaði hann meðal annars hjá Vinnuveitendasambandi Íslands, í heildsölu og í Seðlabanka Íslands. Friðrik er með BA-próf í alþjóðasamskiptum og utanríkisþjónustu, MBA-próf í alþjóðaviðskiptum og MA-próf í alþjóðasamskiptum.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira