Nicholson tekur til í Óskars-hillunni 4. júní 2009 02:00 Öruggur Óskar Jack Nicholson tekur við hlutverki sem Bill Murray hafnaði og leikur í rómantískri gamanmynd eftir James L. Brooks.
Jack Nicholson hefur ákveðið að taka við keflinu af gamanleikaranum Bill Murray í kvikmynd eftir James L. Brooks. Myndinni hefur enn ekki verið gefið nafn en er titluð sem Paul Rudd/Reese Witherspoon/Owen Wilson-myndin en hún ku vera rómantísk, væntanlega með smá gríni og glensi inni á milli. Murray hafði staðið í samningaviðræðum við framleiðendur myndarinnar í dágóðan tíma en þegar hann svaraði ekki skilaboðum og lét ekki ná í sig, gáfust þeir upp og fengu Nicholson til að hlaupa í skarðið. Ef marka má kvikmyndabiblíuna Variety þá er þetta ekkert óalgengt þegar Murray er annars vegar því Sofia Coppola, leikstjóri Lost in Translation, vissi ekki hvort Murray hefði samþykkt að leika í myndinni fyrr en hann mætti til Japans. En þá að Jack Nicholson. Hann er væntanlega farinn að taka til í Óskars-hillunni sinni, nú þegar samstarfið við Brooks hefur verið endurnýjað. Því þegar Nicholson hefur leikið í kvikmynd eftir leikstjórann þá hefur sú ráðstöfun nánast undantekningalaust skilað honum gullstyttunni frægu. Nicholson fór á kostum í Terms of Endearment og var engu síðri í As Good as it Gets, en þær kvikmyndir eru báðar eftir Brooks. Þótt hlutverkið sé lítið, spáir kvikmyndatímaritið Empire því að Nicholson verði meðal þeirra sem tilnefndir verða til Óskarsins fyrir bestan leik í aukahlutverki.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Rassaumhirða karla í sókn Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira