Íslensk kona leitar að staðgöngumóður Telma Tómasson skrifar 15. júní 2009 19:25 „
Það er okkar stærsta ósk að eignast annað barn," segir íslensk kona sem leitar að staðgöngumóður hér á landi til að ganga með barn fyrir sig. Staðgöngumæðrun er bönnuð á Íslandi, en nefnd á vegum heilbrigðisráðuneytisins fjallar nú um lögleiðingu þess. Með staðgöngumæðrun er átt við að kona gangi með barn fyrir par og láti það svo af hendi eftir fæðingu. Fósturvísirinn sem notaður er geymir kynfrumur foreldranna og er fóstrið því líffræðilega alls ótengt staðgöngumóðurinni. Vitað er að íslensk pör hafa um árabil farið til landa þar sem staðgöngumæðrun er leyfð til að eignast barn með aðstoð íslenskra eða erlendra staðgöngumæðra. Hjón sem eru í slíkum hugleiðingum leita nú að konu hér á landi sem er tilbúin til þess að ganga með barn þeirra. „Hún þarf ekkert endilega að vera íslensk, en hún þarf helst að vera á Íslandi svo ég geti fylgst með. Farið með henni í skoðun, heyrt hjartsláttinn og allt þetta," segir konan um staðgöngumóðurina sem hún myndi vilja. Konan hefur um nokkurt skeið auglýst árangurslaust eftir staðgöngumóður, en sjálf getur hún ekki gengið með barn, því leg hennar var fjarlægt eftir að hún greindist með krabbamein. Hún og maður hennar eiga nokkra fósturvísa í geymslu og vilja reyna að eignast sitt eigið barn, áður en þau hugleiða ættleiðingu. Þau segjast mæta miklum skilningi hjá fjölskyldu, vinum og sérfræðingum. Nánar er fjallað um málið í Íslandi í dag, en þar segir konan frá leit sinni að staðgöngumóður og hvers vegna hún og maður hennar eru reiðubúin til að feta svo erfiða og kostnaðarsama leið við að stækka fjölskylduna.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira