Bitist um Guð blessi Ísland 14. júlí 2009 06:00 Guð blessi ísland Þessi fleygu ummæli Geirs H. Haarde virðast ætla að reynast einkunnarorð hrunsins - en bæði Símon Birgisson leikskáld og Helgi Felixson kvikmyndagerðarmaður hafa fundið í þeim titil verka sinna. „
Það á náttúrulega enginn einkarétt á setningunni „Guð blessi Ísland". En það er vandræðalegt að bæði verkin beri sama nafn," segir Símon Birgisson, leikskáld og listnemi. Fréttablaðið greindi frá því fyrir nokkru að kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Felixson verði líklega fyrstur til að frumsýna sína heimildarmynd um hrunið þann 6. október, en nokkur fjöldi kvikmyndagerðarmanna vinnur að gerð heimildarmynda um þessa merkilegu tíma í sögu Íslands. Helgi leitar ekki langt yfir skammt og hefur gefið mynd sinni nafnið „Guð blessi Ísland" með vísan í fræga ræðu Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Svo meinlega vill til að þetta er nákvæmlega titillinn sem Símon hafði fundið á heimildarleikrit sem var útskriftarverkefni hans við Listaháskólann í vor. Verk Símonar var frumflutt í Borgarleikhúsinu og stendur til að það verði flutt í Útvarpsleikhúsinu í haust. Símon sendi Helga tölvupóst og vakti athygli hans á þessum meinlega árekstri. Helgi Felixson. „Hann var kammó þessi gaur. En það er fyndið að hann skuli taka nafn á verki, sem er heimildarleikrit um krísuna, útskriftarverkefni mitt. Erfitt fyrir mig að vera að berjast við hákarla í kvikmyndaheiminum. Þetta sýnir ekki mikla hugmyndaauðgi af hans hálfu," segir Símon sem setti sig í samband við Rithöfundasamband Íslands til að kynna sér stöðu sína og hefur í höndum bráðabirgðasvar þaðan. Þar er vísað í höfundalög, VI. kafla, Ýmis ákvæði, 51. grein: „Nú hefur höfundur notað sérstakan titil, gervinafn eða merki á birtu verki, og er öðrum þá óheimilt að birta verk með sams konar auðkenni eða svo áþekku, að líklegt sé, að villst verði á verkunum eða höfundum þeirra." Símon segist ekki hafa bolmagn til að vekja athygli á því að leikrit hans og heimildarmynd Helga séu ekki sama fyrirbærið. Hann hefur ekki tekið ákvörðun um hvernig rétt sé að bregðast við þessari stöðu. Símon Birgisson listaháskólanemi Helgi Felixson segist fátt geta sagt um málið annað en að þetta nafn hafi verið á myndinni nánast frá því orð Geirs féllu. Helgi segist ekkert hafa þekkt til téðs heimildarleikrits fyrr en honum barst tölvupóstur frá Símoni. „Þetta kom mér á óvart. Ég hafði ekki hugmynd um þetta enda bý ég ekki á Íslandi," segir Helgi sem búsettur er í Svíþjóð. Hann telur óvíst að Símon hafi verið á undan með að ákveða þennan titil á sitt verk. Símon er nú við mastersnám í Þýskalandi, komst einn fjögurra af nokkur hundruð umsækjendum í leiklistarfræði í Giessen-háskólann, sem er ein frægasta leiklistardeildin „ … í avant Garde-senunni hérna úti," segir Símon. jakob@frettabladid.is
Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira