24 árangurslaus fjárnám hjá Klæðningu 27. nóvember 2009 06:00 Íshella 7 Það var þetta húsnæði, sem hýsir starfsemi Klæðningar í Hafnarfirði, sem stjórnarformaðurinn benti á sem eign til að gera fjárnámið í.Fréttablaðið/Stefán
Sýslumaðurinn í Kópavogi gerði fyrr í þessum mánuði 24 árangurslaus fjárnám hjá Klæðningu ehf. vegna vanskila á skuldum upp á samtals um 60 milljónir króna. Lögmaður Klæðningar hefur kært ákvörðunina til héraðsdóms vegna þess sem hann kallar óeðlileg vinnubrögð sýslumannsfulltrúans sem sá um málið. Fulltrúi sýslumannsins bankaði upp á á heimili Bjarna Más Bjarnasonar, stjórnarformanns Klæðningar, klukkan hálf tíu að kvöldi 12. nóvember og krafðist þess að hann benti á eignir til að gera fjárnám í vegna 24 skulda. Flestar skuldirnar voru við ýmis fyrirtæki, en sú stærsta, um 30 milljónir, var við Sýslumanninn í Hafnarfirði og til komin vegna vangreiðslu opinberra gjalda. Upphæðin var áætluð og hefur sú skuld nú lækkað í tæpar tvær milljónir. Bjarni Már benti á fasteign í Hafnarfirði og 62 milljóna kröfu sem Klæðning átti á nýlegan kaupanda að fasteigninni. Hann taldi þessa tryggingu næga, enda námu skuldirnar sem gera átti fjárnám vegna sem áður segir um sextíu milljónum. Sýslumannsfulltrúinn var hins vegar ósammála. „Hún afgreiddi þetta snaggaralega þannig á staðnum að þetta væri einskis virði,“ segir Magnús Guðlaugsson, lögmaður Klæðningar. „Þar með var fjárnámið orðið árangurlaust.“ Þegar gert hefur verið árangurslaust fjárnám hjá félagi hafa þeir sem kröfu eiga á það þrjá mánuði til að fara fram á að það verði tekið til gjaldþrotaskipta. Magnús telur einsýnt að fulltrúinn hafi ekki staðið löglega að málum. Bjarni hafi óskað eftir því að virði eignarinnar sem hann benti á yrði metið, en á það hafi fulltrúinn ekki fallist. „Sóknaraðili telur að fulltrúi sýslumanns hafi hvorki verið hæfur né búið yfir nægri þekkingu til að meta eignirnar,“ segir í kæru Magnúsar. Bjarna hafi ekki heldur verið gefinn kostur á að benda á aðrar eignir til tryggingar, jafnvel þótt félagið eigi margar aðrar eignir. Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Kópavogi, segist ekki geta tjáð sig um einstök mál. Hann bendir hins vegar á að lögum samkvæmt séu gerðarþolar alltaf boðaðir á skrifstofu sýslumanns til fjárnáms. Sinni þeir ekki ítrekuðum boðunum sé farið í svokallað útifjárnám, sem sé nær undantekningarlaust árangurslaust. „Ég kannast ekki við að neitt sé óeðlilegt við starfshætti fulltrúans,“ segir hann. Fyrirtökur voru í öllum málunum á þriðjudag og er munnlegur málflutningur áætlaður í desember.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira