Innlent

Verð á kjarnfóðri hækkar

Fyrirtækið Lífland hækkar í dag verð á kjarnfóðri til bænda um fimm til sex prósent, en kjarnfóðurshækkanir þrýsta á hækkun landbúnaðarvara til neytenda. Í tilkynningu frá félaginu segir að síðastliðna þrjá mánuði hafi íslenska krónan veikst um 10 prósent gagnvart Bandaríkjadal og um tæp 16 prósent gagnvart evru. Jafnframt hafi orðið verðhækkanir ytra á hráefni til fóðurgerðar, sérstaklega á sojamjöli og maís.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×