Sonur Gunna Þórðar er kominn í tónlistarbransann 8. október 2009 03:00 Proggaðir Hljómsveitin Caterpillarmen frá vinstri: Andri, Zakarías, Ísak Örn og Ingimundur.Fréttablaðið/Stefán
Eplið fellur sjaldnast langt frá eikinni. Sonur Gunna Þórðar þreifar nú fyrir sér í tónlistinni. „Nei, við erum ekkert líkir Trúbroti, þetta er nú frekar eins og King Crimson, Yes og ELP rúllað upp í eitt,“ segir Zakarías Gunnarsson, 21 árs sonur Gunnars Þórðarsonar tónlistarmanns. Zakarías spilar á bassa með hljómsveitinni Caterpillarmen. Með honum í bandinu eru bræðurnir Ísak Örn og Ingimundur Guðmundssynir á gítar og orgel og Andri Þórhallsson á trommur. „Ég er gamli kallinn í bandinu, 21 árs,“ segir Zakarías. Hann segir hina hafa verið að fást við blúsrokk en bandið hafa farið að „proggast upp“ þegar hann kom til sögunnar í janúar á þessu ári. „Við sækjum samt alveg innblástur í yngri bönd eins og Battles,“ bætir hann við. Caterpillarmen hefur verið að vekja athygli að undanförnu með gríðarþéttri frammistöðu á tónleikum og fyrsta platan er tilbúin. Hún heitir Api og kemur út á vegum Brak-útgáfunnar bráðlega, eða „fyrir Airwaves,“ eins og Zakarías segir. „Það eru sex lög á henni með eins mörgum köflum og hægt er að troða í hvert lag. Platan er samtals 38 mínútur. Við erum svo byrjaðir að pæla í næstu plötu og erum meðal annars komnir með eitt 20 mínútna lag sem skiptist í fjóra kafla.“ Á meðan synir Rúnars Júlíussonar hafa getið sér gott orð í músíkinni er Zakarías fyrsti afkomandi Gunna Þórðar sem lætur til sín taka á þessu sviði. „Ég byrjaði að læra á bassa tólf ára, fór á gítarinn fimmtán ára, og síðan aftur á bassann. Og jú, pabbi er mjög ánægður með bandið,“ segir hann. Caterpillarmen: Leggið nafnið á minnið. Næst spilar bandið á Grand rokk nú á föstudagskvöldið á fjáröflunartónleikum fyrir Hljóðstofuna, nýtt hljóðver. Það kemur fram auk átta annarra hljómsveita, þar á meðal Mammút, Bob og Sudden Weather Change. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Sjá meira