Segir næstu ríkisstjórn eiga að sækja um ESB-aðild 17. apríl 2009 17:47 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans í dag að sjaldan hefði slíkt ávarp verið haldið á meiri óvissutímum og rakti þær hugmyndir sem hún taldi skipta mestu til að eyða þeirri óvissu. Hún ítrekaði vilja sinn til að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu og sagðist þess fullviss að það yrði gæfuspor. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu. ,,Ég hef ekki farið leynt með þá skoðun mína að eitt af forgangsverkefnum næstu ríkisstjórnar á að vera umsókn um aðild að Evrópusambandinu og upptaka Evru. Niðurstaða aðildarviðræðna mun leiða í ljós svart á hvítu þau tækifæri sem felast í aðild að Evrópusambandinu. Þá niðurstöðu eigum við óhrædd að leggja í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu," sagði forsætisráðherra orðrétt í ræðu sinni.Seðlabanki Íslands leiti samvinnu við Seðlabanka Evrópu Og ráðherra bætti við: ,,Fyrir liggur að þjóðir sem ekki hafa tekið upp Evru, svo sem Danir, hafa notið aðstoðar Seðlabanka Evrópu og að bankinn hefur aðstoðað aðrar þjóðir svo sem Ungverja í þeirra erfiðu aðstæðum. Ég vil að samhliða aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði leitað samninga um hvort og þá hvernig Seðlabanki Evrópu gæti komið að því að halda hér gengi stöðugu til skemmri tíma, eða þar til unnt væri að taka upp Evru hér á landi. Í Evrópuskýrslunni sem kynnt var fyrr í dag eru kostir og gallar þessara leiða reifaðar. Ljóst er að hvers kyns samvinna við Seðlabanka Evrópu myndi auka trúverðugleika Seðlabanka íslands og gera honum auðveldara að ná fram markmiðum sínum um stöðugleika."Fækkun ráðuneyta, sameining stofnana Forsætisráðherra boðaði fækkun ráðuneyta og að þegar yrði á vegum forsætisráðuneytisins undirbúnar tillögur um að fækka þeim ráðuneytum sem hafa með löggjöf á sviði fjármálamarkaðar að gera og sem fyrst eftir kosningar sett á fót nefnd sem kanni nánar kosti og galla þess að auka samstarf milli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins og eða sameina þessar tvær stofnanir. Í því starfi verði meðal annars metið hvernig megi stuðla að því að þessar stofnanir beiti eftirlitsheimildum sínum af fullum krafti.Endurskoðun peningastefnunnar, endurmat á verðtryggingu Forsætisráðherra sagði einnig að nú væri tími til kominn að peningastefnun yrði endurskoðuð. Ráðerra sagði: ,,Ég hef því ákveðið að fela nýrri peningastefnunefnd Seðlabankans að fara yfir kosti og galla þess að breyta peningastefnunni og gera tillögu til stjórnvalda með hliðsjón af því mati. Jafnframt tel ég rétt að Seðlabankinn leggi mat á hvernig við getum stigið mikilvæg skref til þess að koma okkur út úr verðtryggingunni."Traust er forsenda endurreisnar - Kaupþingsmál í Þýskalandi leyst Ráðherra margítrekaði í ræðu sinni mikilvægi þess að endurskapa traust á íslenskum fjármálmarkaði bæði innanlands og utan og sagði stjórnvöld vinna að því markmiði með öllum ráðum. Hún nefndi í því sambandi endurskoðun laga um Seðlabankann og samstarf við velviljuð nágrannaríki um lánafyrirgreiðslu auk hagstæðra samninga um Icesave sem hlut í því ferli. Ráðherra vék því næst að málefnum Kaupþings í Þýskandi og sagði: ,,Hins vegar liggur nú fyrir, og gaman að geta sagt frá því hér í dag, að eignir Kaupþings eru nægilegar til þess að gera upp við þýska innistæðueigendur. Mikilvægum áfanga í uppgjöri og sátt gagnvart aþjóðasamfélaginu er þar með náð." Ræðuna í heild má nálgast á vef forsætisráðuneytisins
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Sjá meira