Innlent

Halli ríkissjóðs verður að minnsta kosti 170 milljarðar

Halli ríkissjóðs verður að minnsta kosti hundrað og sjötíu milljarðar króna á þessu ári. Erfið verkefni bíða nýrrar ríkisstjórnar við að láta enda ná saman.

Í fjárlögum þessa árs var gert ráð fyrir að halli ríkisjóðs yrði 153 milljarðar króna. Greiðslur úr atvinnuleysistryggingarsjóði hafa hins vegar aukist hratt auk þess sem tekjur verða minni en búist var við sem hefur það í för með sér að hallinn ríkissjóðs verður meiri en áður var búist við eða á bilinu hundrað og sjötíu til hundrað sjötíu og fimm milljarðar króna. Tekjur ríkissjóðs á þessu ári eru áætlaðar um 410 milljarðar króna. Og áætlað er að gjöldin verði 580 milljarðar.

Þar að auki er talið að halli ríkisjóðs á næsta ári verði 35-55 milljarðar. Samkvæmt samkomulaginu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafa stjórnvöld tvö ár til að draga úr hallanum og ná jafnvægi í ríkisfjármálum.

Ríkið hefur tvær leiðir til að draga úr hallanum, hækka skatta og skera niður ríkisútgjöld eða gera hvoru tveggja og fara svokallað blandaða leið. Skoðum nokkrar aðgerðir sem ríkið gæti gripið til og sjáum hver mikið sparast með þeim.

Beinn launakostnaður ríkissins er áætlaður 129 milljarðar á árinu 2009. Með því að lækka laun opinberra starfsmanna sem eru í beinum störfum hjá ríkinu um tíu prósent myndu því sparast um þrettán milljarðar króna. Hækkun virðisaukaskatts um þrjú prósentustig myndi skila 15-20 milljörðum í kassa ríkissjóðs.

Hægt væri að hækka tekjuskatt en hvert prósenta í tekjuskatti færir ríkissjóði tekjur upp á um 7 milljarða króna. Tveggja prósentustiga skattahækkun myndi því skila 14 milljörðum og svo framvegis. Eins og sjá má er þetta einungis dropi í hafið og ljóst að skera þarf töluvert niður. Samkvæmt heimildum fréttastofu má telja líklegt að lagt verði fram neyðarfjárlagafrumvarp strax að loknum kosningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×