Úthlutaði 25 milljónum til atvinnumála kvenna 17. apríl 2009 16:00 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, úthlutaði í dag 25 milljónum til atvinnumála kvenna.
Umhverfisvænar byggingareiningar, táknmálsvefur, rjómabú, baðhús í Stykkishólmi, þaraböð á Reykhólum, örlitameðferð til að bæta útlit eftir veikindi eða slys og hólkar úr bylgjupappír sem nota má sem skilrúm eru á meðal þeirra viðskiptahugmynda sem fengu úthlutað úr sjóði félags- og tryggingamálaráðuneytis til atvinnumála kvenna að þessu sinni. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir úthlutaði 25 milljónum til atvinnumála kvenna við athöfn í Iðnó í dag. Í ár barst 261 umsókn en umsóknir hafa aldrei verið fleiri síðan byrjað var að veita styrkina árið 1991 að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi félagsmálaráðherra, að fram kemur í tilkynningu. Alls er úthlutað til 38 viðskiptahugmynda og nema hæstu styrkirnir tveimur milljónum króna en þeir lægstu nema 300 þúsundum króna. Tvær viðskiptahugmyndir fengu úthlutað tveimur milljónum króna. Annar styrkurinn er til vöruþróunar og markaðssetningar á umhverfisvænum byggingareiningum sem geta nýst sem skjól og tengst saman í stærri skýli, lengju eða hring. Hinn styrkurinn er til þróunar táknmálsvefs þar sem hægt er að læra táknmál og fræðast um menningu og sögu táknmálsins. Þá er 1,8 milljón króna úthlutað til þróunar hugmyndar um rjómabú á Erpsstöðum til að framleiða ýmsar vörutegundir eins og ís, eftirrétti og osta. Baðhús sem nýtir heilsuvatnið í Stykkishólmi og þaraböð á Reykhólum fá hvort um sig úthlutað 1,5 milljón króna. Ásta Ragnheiður sagði að „það væri svo sannarlega mikil ástæða til þess nú að ýta undir frumkvöðlastarf og uppbyggingu nýrra atvinnutækifæra." Þá hrósaði ráðherra umsækjendum fyrir hugmyndaauðgi og sagði „að verðlaunahugmyndirnar sýndu svo ekki væri um villst að á Íslandi væri sköpunarkraftur og kvenauður mikill."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Sjá meira