Minnir á grísku byltinguna 17. apríl 2009 06:00 Stefania við Vatnsstíg Gríski nemandinn hrópaði og kallaði á íslensku við mótmælin, en það sem var að gerast fékk hana til að hugsa til stóratburða frá sínum heimahögum árið 1973. fréttablaðið/valli „
Það misbýður réttlætiskennd minni að sjá lögregluna handtaka fólkið sem hefur komið sér fyrir í þessu húsi,“ segir Stefania Kromydaki, grískur háskólanemi sem var við mótmælin á Vatnsstíg þegar lögreglan leiddi hústökufólkið burt í járnum. „Þetta hús er látið grotna niður til að þrýsta á leyfi til þess að rífa það. Þannig er það orðið lýti á Reykjavík og svo þegar fátækt, ungt fólk með góðar hugmyndir kemur til að gera eitthvað gott úr því þá er gripið til þessara aðgerða. Þetta fólk hefur engan stað til að halla höfði sínu, hvar ætlar lögreglan að láta það búa? Úti á götu?“ Mótmæli hafa sett svip sinn á sögu Grikklands. Það voru til dæmis mótmæli ungs fólks, sem síðar leitaði sér skjóls í Tækniháskólanum í Aþenu árið 1973, sem kom herforingjastjórn frá völdum það ár. Þeirrar byltingar er minnst af mikilli lotningu þar í landi allar götur síðan. „Það er ekki laust við að ég minnist þeirra atburða þegar ég sé þetta, það er margt af því sem hér er að gerast sem minnir á byltinguna í Grikklandi sem kennd er við Tækniháskólann.“ Stefania var á meðal þeirra sem sátu fyrir lögreglubílum sem fóru um Vatnsstíg og sá blaðamaður að hún lenti nærri staur þegar henni var hent af götunni. „Það eru nú bara smámunir miðað við það sem er að gerast hérna,“ segir hún aðspurð um það atvik.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira