Innlent

Þurfa ekki að fara í blóðprufu

Jónína Benediktsdóttir.
Jónína Benediktsdóttir.

Jónína Benediktsdóttir, sem er í forsvari fyrir www.detox.is, segist hafa fullan skilning á því að spara þurfi í heilbrigðiskerfinu en Landlæknir hefur beint því til lækna að þeir neiti staðfastlega að taka blóðprufur hjá fólki sem er á leið á Detox námskeið hjá Jónínu. Jónína segir að því hafi verið ákveðið að hætta að mælast til þess að fólk fari í blóðprufu áður en það mætir á námskeiðið.

„Ég skil vel að það þurfi að spara í heilbrigðiskerfinu og því höfum við tekið þetta út af heimasíðunni okkar," segir Jónína. „En við hvetjum hins vegar fólk sem er í einhverskonar læknismeðferð og ætlar á námskeið hjá okkur, að mæta með niðurstöður úr síðustu blóðrannsókn." Jónína segir að blóðprufurnar séu arfleifð frá því námskeiðin voru einungis haldin í Póllandi.

„Við höfum yfirleitt farið með fólkið í blóðprufur í Póllandi en þar kostar prufan fjögur þúsund íslenskar að hámarki." Jónína tekur fram að hún lesi ekki út úr prufunum sjálf, heldur sjái læknarnir sem hún vinnur um það. „Oft á tíðum finnum við í þessum prufum einhverskonar ástand sem við reynum að bæta. En þetta er í sjálfu sér allt í lagi, við sleppum bara þessum þætti," segir Jónína.

„En svo má nú benda á að við erum með þessari meðferð að spara ríkinu hundruðir milljóna með því að hjálpa fólki að losna ýmisskonar lyf, þannig að það er mikill sparnaður fólginn í því fyrir ríkið að fólk mæti í okkar meðferð," segir hún að lokum.






Tengdar fréttir

Landlæknir vill að læknar neiti beiðnum um detox-blóðprufur

Landlæknisembættið beinir því til lækna að þeir neiti staðfastlega beiðnum um blóðrannsóknir sem ekki eru gerðar á læknisfræðilegum forsendum. Þetta kemur fram á heimasíðu embættisins en tilefnið er ábendingar sem Landlækni hafa borist frá læknum vegna námskeiða á vegum www.detox.is, sem Jónína Benediktsdóttir líkamsræktarfrömuður stendur fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×