Innlent

Sendinefnd AGS væntanleg

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ætlar að koma hingað til lands í vikunni til viðræðna við ríkisstjórnina og fleiri og stefnt er að því að endurskoða samstarfsáætlanir sjóðsins og ríkisins í kjölfarið.

Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, meðal annars á Alþingi í gærkvöldi, í umræðu um stefnuræðu Jóhönnu Siguðardóttur forsætisráðherra. Hún sagðist telja að aðildarumsókn að Evrópusambandinu hefði jákvæð áhrif út á við, en að aðild að sambandinu ein og sér væri ekki töfralausnin.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist telja að sá trúverðugleiki, sem átti að fylgja samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn væri í vissu uppnámi þar sem sjóðurinn dragi að greiða út umsamið lán.

Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, sagði mikilvægt að leita aftur til nágrannaþjóða Íslands um lán og afþakka svo aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×