Innlent

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna opnaði í Sóltúni

Árni Páll heilsaði upp á starfsfólkið í Sóltúni í dag. Mynd/ Anton Brink.
Árni Páll heilsaði upp á starfsfólkið í Sóltúni í dag. Mynd/ Anton Brink.
Ný starfsstöð Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var opnuð í Sóltúni 26 í dag. Þar starfa 10 manns. Á vefsíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins kemur fram að töluverður erill hafi verið frá því að opnað var klukkan 9 í morgun og í lok dags hafi rúmlega 30 manns leitað sér ráðgjafar.

Jafnframt er verið að fjölga starfsfólki Ráðgjafarstofunnar á Hverfisgötu og verða starfsmenn á starfsstöðvum Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna alls 29 innan skamms.

„Þeir sem leita til starfsstöðvar Ráðgjafarstofunnar í Sóltúni geta komið fyrirvaralaust og þurfa ekki að panta tíma í ráðgjöf. Þar eru veittar grundvallarleiðbeiningar um möguleg úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum. Ef þörf er fyrir frekari aðstoð er fólki vísað áfram til Ráðgjafarstofunnar á Hverfisgötu þar sem farið er nánar í saumana á aðstæðum hvers og eins," segir á vefsíðu ráðuneytisins.

Síðdegis hitti Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, starfsfólk Ráðgjafarstofu í Sóltúni og kynnti sér starfsemina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×