Innlent

Landlæknir vill að læknar neiti beiðnum um detox-blóðprufur

Matthías Halldórsson, landlæknir.
Matthías Halldórsson, landlæknir.

Landlæknisembættið beinir því til lækna að þeir neiti staðfastlega beiðnum um blóðrannsóknir sem ekki eru gerðar á læknisfræðilegum forsendum. Þetta kemur fram á heimasíðu embættisins en tilefnið er ábendingar sem Landlækni hafa borist frá læknum vegna námskeiða á vegum www.detox.is, sem Jónína Benediktsdóttir líkamsræktarfrömuður stendur fyrir.

Landlækni hefur verið bent á að Detox fari fram á það við þátttakendur í námskeiðum að þeir fari fyrst í blóðprufu. „Af því tilefni vill Landlæknisembættið minna lækna á að ekki skal vísa fólki í rannsóknir nema læknisfræðilegar ábendingar liggi fyrir."

Landlæknir bendir einnig á að aldrei hafi verið mikilvægara en nú að standa vörð um fjárútlát í heilbrigðismálum og forgangsraða rétt. „Því ber að neita staðfastlega beiðnum um blóðrannsóknir sem ekki eru gerðar á læknisfræðilegum forsendum."
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×