Innlent

Endurkjörinn formaður Faxaflóahafna

Júlíus Vífill var endurkjörinn formaður Faxaflóahafna í dag.
Júlíus Vífill var endurkjörinn formaður Faxaflóahafna í dag. Mynd/GVA

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var endurkjörinn formaður Faxaflóahafna á fundi borgarstjórnar í dag.

Jafnframt voru kjörnir fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórn fyrirtækisins. Þeir eru auk Júlíusar Jórunn Ósk Frímannsdóttir, Guðmundur Gíslason, Dagur B. Eggertsson og Þorleifur Gunnlaugsson.

Faxaflóahafnir eiga og reka fjórar hafnir, Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn. Fyrirtækið er sameignarfélag í eigu fimm sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshrepps og Borgarbyggðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×