Veit ekki hverjir eiga jöklabréfin 19. maí 2009 13:59 Steingrímur J. Sigfússon í ræðustól á Alþingi.
Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar spurði Steingím J. Sigfússon fjármálaráðherra hvenær yrði upplýst hverjir raunverulegir eigendur hinna svokölluðu jöklabréfa væru á Alþingi fyrir stundu. Talaði hann um sterkan orðróm sem hefði verið uppi um að innlendir fjárfestar og fjármálastofnanir væru hinir raunverulegu eigendur bréfanna. Steingrímur sagði þann orðróm ekki réttan. „Samkvæmt mínum upplýsingum sem ég byggi aðallega á samtölum mínum við Seðlabankann þá er það í mjög óverulegum mæli og sá orðrómur er því ekki réttur," sagði Steingrímur um orðróminn sem Þór talaði um. Steingrímur sagðist ekki hafa upplýsingar undir höndum hverjir eigi umrædd jöklabréf í augnablikinu. Vísaði hann á Seðlabankann sem myndi þá upplýsa um það á viðskiptalegum forsendum. Steingrímur, svaraði einnig Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Framsóknarflokksins og sagði hann vel koma til greina að þingnefndir fái upplýsingar um stöðu bankanna nú þegar skýrslur endurskoðunarfyrirtækjanna Delautte og Weimann liggja fyrir. Sigmundur vildi vita hvers vegna almenningur fengi ekki að vita um innihald skýrslunnar. Steingrímur sagði að málið væri í þeim farvegi að samningaviðræður standi nú yfir á milli kröfuhafa og skilanefnda, nýju bankanna og ráðgjafa stjórnvalda. Um mikla hagsmuni væri að tefla og að mestu máli skipti að ná samkomulagi um farsæla lausn á þeim málum fyrir alla aðila og ekki síst ríkið. Ráðgjafar ríkisstjórnarinnar mæltu með því í upphafi að sögn Steingríms að trúnaðar væri gætt í þessari vinnu og því væri ekki hægt að upplýsa að svo stöddu um innihald skýrslanna. Hins vegar væri hægt að skoða það að veita þingnefndum ákveðnar upplýsingar. Nú stendur yfir fyrispurnartími með óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira