Borgarstjórn samþykkir Græn skref í Reykjavík Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. maí 2009 17:31 Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir segir að Grænu skrefin hafi gengið vel. Mynd/ Anton Brink.
Forgangsreinum fyrir strætisvagna og tengingum fyrir rafmagnsbíla verður fjölgað á árinu og hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík verður brátt samþykkt. Þetta er meðal þeirra aðgerða sem hrint verður í framkvæmd í nafni Grænna skrefa sem borgarstjórn samþykkti í dag. Grænu skrefin fela í sér á fjórða tug aðgerða í umhverfismálum. „Það er ánægjulegt hversu vel Græn skref í Reykjavík hafa gengið og mun Reykjavíkurborg áfram stíga stór vistvæn skref og verða til fyrirmyndar í umhverfismálum," segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að fjörutíu og fimm græn skref voru sett fram árið 2007 og nú er 90% þeirra annað hvort lokið eða komin vel af stað. Grænu skrefin nú eru sett fram í tíu liðum eins og áður: Miklu betri strætó, verðlaunum visthæfa bíla, göngum lengra, hjólum meira, lifandi og skemmtileg borg, betra loft fyrir alla, meiri endurvinnsla, byggjum vistvæn hverfi, visthæfari leik- og grunnskólar, höldum borginni hreinni og Reykjavíkurborg til fyrirmyndar. Í áætluninni er gert ráð fyrir að gönguleiðir skólabarna verða merktar og kynntar sérstaklega og bekkjum og handriðum komið fyrir við göngustíga sem tengja búsetusvæði eldri borgara og nálæg útivistarsvæði. Hafist verður handa við að leggja hjólreiðastíg í Fossvogi milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar samhliða núverandi göngustíg. Einnig má nefna sem dæmi að öll hverfi fá eigið náttúrusvæði til útikennslu og umhverfisfræðslu. Að búa til sælureit nefnist aðgerð sem felst í samstarfsverkefni milli borgar og íbúa um að skapa og annast sælureiti í hverfum borgarinnar. Áfram verður unnið að betri loftgæðum í borginni og verður meðal annars loftlags- og loftgæðastefna fyrir Reykjavík samþykkt, eftir því sem fram kemur í upplýsingu frá borginni.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira