Yngri dóttir Sophiu Hansen hugsanlega á leiðinni til Íslands 21. desember 2009 13:46 Sophia Hansen á leiðinni út úr dómshúsi fyrr á árinu.
Yngri dóttir Sophiu Hansen, Rúna, verður kölluð til vitnis í aðalmeðferð í sakamáli gegn Sophiu sem var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Sophia er ákærð fyrir að hafa borið Sigurð Pétur Harðarson, fyrrum útvarpsmann, röngum sakargiftum. Þá sagði hún við yfirheyrslur hjá lögreglunni árið 2007 að hana grunaði Sigurð Pétur um að hafa falsað undirskrift hennar á þrjú viðskiptabréf. Samtals var andvirði þeirra rétt rúmar 42 milljónir króna. Sjálf neitar Sophia sök. Samkvæmt heimildum Vísis var Rúna, sem er búsett í Tyrklandi, vottur á viðskiptabréfunum og því þarf að kalla hana til vitnis. Þá þarf einnig að kalla tvo sænska rithandarsérfræðinga til vitnis. Það var niðurstaða þeirra sem leiddi í ljós að Sigurður Pétur hefði ekki falsað undirskrift Sophiu. Athygli vekur að kalla þurfi Rúnu til vitnis. Komi hún til Íslands verður það í fyrsta skiptið síðan faðir þeirra, Halim Al, fór með þær af landi brott snemma á tíunda áratugnum. Í kjölfarið fór Sophia í kostnaðarsama og landsfræga baráttu um að endurheimta dætur sínar Rúnu og Dagbjörtu. Þær eru búsettar í Tyrklandi. Það er ríkissaksóknari sem gefur út ákæru vegna málsins en fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sækir það í héraðsdómi. Að bera mann röngum sökum er alvarlegt brot en viðurlög eru allt að sextán ára fangelsi.
Mest lesið Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Kallar þjóðaröryggisráð saman Innlent Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Erlent Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Erlent Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Innlent Hættir sem þingflokksformaður Innlent Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Erlent Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Erlent Hópslagsmál og hundaárás Innlent Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Innlent Fleiri fréttir Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Kallar þjóðaröryggisráð saman Verulegt högg fyrir ferðaþjónustuna Eftirköstin af gjaldþroti Play og friðaráætlun á Gasa Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Áhyggjur landsmanna af útbreiðslu hernaðarátaka í Evrópu aukast Hættir sem þingflokksformaður Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Hópslagsmál og hundaárás Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Fall Play frá öllum hliðum Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Neyðast til að millilenda, tapaður peningur og rándýr flug heim Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Play hættir að fljúga, hundruð missa vinnuna og strandaglópar í Leifsstöð Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Bílstjórinn þrettán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Sjá meira