Refaveiðar ekki styrktar en áfram herjað á minkinn 16. nóvember 2009 12:24
Styrkir ríkisins til refaveiða verða felldir niður á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Hins vegar verða minkaveiðar áfram styrktar, á þeim grundvelli á minkurinn sé aðskotadýr í íslenskri náttúru.Sveitarfélög hafa til þessa greitt veiðimönnum fyrir veiða bæði ref og mink en síðan fengið styrki á móti frá ríkinu. Þannig endurgreiðir ríkið sveitarfélögum allt að 3.500 krónur fyrir hvert refaskott á þessu ári.Umhverfisstofnun hefur nú sent sveitarfélögum landsins bréf þess efnis að þau geti ekki vænst þess að fá endurgreiðslur vegna refaveiða á næsta ári, enda sé búið að fella niður fjárveitinguna í fjárlagafrumvarpinu, sem var samtals um 17 milljónir króna í ár. Hins vegar er áfram gert ráð fyrir því að styrkja minkaveiðar með samsvarandi framlagi.Í greinargerð fjárlagafrumvarpsins kemur fram að niðurfelling styrkja til refaveiða séu liður í markmiði umhverfisráðuneytisins að mæta markmiði ríkisstjórnarinnar um lækkun ríkisútgjalda.Þegar spurt er hversvegna greinarmunur er gerður á refa- og minkaveiðum og hversvegna ríkið vill hlífa refnum en áfram herja á minkinn svarar Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytsins, því til að minkurinn sé innflutt tegund, sem ekki teljist hluti af íslenskri náttúru, öfugt við refinn. Það sé beinlínis vilji til þess að útrýma minknum og í gangi tilraunaverkefni í því skyni.
Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Sjá meira