Innlent

Skíðasvæði víða opin

Óvíst er hvort það verði skíðafært í Bláfjöllum í dag.
Óvíst er hvort það verði skíðafært í Bláfjöllum í dag.

Skíðasvæðin á landinu eru víða opin í dag. Á Norðurlandi eru skíðasvæðin á Dalvík, Siglufirði, Tindastóll á Sauðárkróki og Hlíðarfjall á Akureyri opin. Nokkuð kalt er á Dalvík, eða tíu stiga frost, en hlýrra á Siglufirði þar sem frostið er þrjár gráður. Færi er með besta móti á báðum stöðum. Hins vegar er lokað í Bláfjöllum, skíðasvæði höfuðborgarbúa. Þar er nokkuð hvasst en kannað verður upp úr klukkan ellefu hvort veður lægi og hægt verði að opna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×