Hæstiréttur staðfestir sekt í DC++ máli Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 11. júní 2009 17:43 Snæbjörn og félagar fagna niðurstöðu Hæstaréttar. Mynd/ Anton
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir níu mönnum í hinu svokallaða DC++ máli. Mennirnir voru upphaflega sakfelldir í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að birta og gera eintök af forritum, kvikmyndum og tónlist á netinu þannig að aðrir gætu nálgast það efni án leyfis rétthafa. Ennfremur var einn ákærða dæmdur fyrir að setja upp og hýsa miðlægan nettengipunkt og hafa með því liðsinnt í verki og hvatt til þess að aðrir ákærðu birtu á netinu í heimildarleysi ólögmæt eintök varin höfundarétti. Í Hæstarétti var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að allt það efni sem ákært hefði verið fyrir nyti verndar höfundalaga. Einnig var tekið undir með héraðsdómi að ákærðu hefðu stundað ólögmæta eintakagerð á höfundaréttarvörðu efni og að sá háttur sem hafður væri á dreifingu þess, að deila því með öðrum á fjölmennu en lokuðu jafningjaneti, jafngilti opinberri birtingu og félli ekki undir undanþáguákvæði 11. gr. höfundalaga, sem leyfi eintakagerð til einkanota. Í yfirlýsingu sem SMÁÍS sendi frá sér síðdegis kemur fram að rétthafar tónlistar og myndefnis lýsi yfir ánægju sinni með niðurstöðu Hæstaréttar í dag. Þar segir jafnframt að þessi niðurstaða sé í samræmi við aðra dóma sem fallið hafa undanfarið á hinum Norðurlöndunum, nú síðast í Svíþjóð og Finnlandi, þar sem brot gegn rétthöfum hafa verið staðfest af dómstólum. Í yfirlýsingu segir einnig að rétthafar tónlistar og myndefnis vonist til þess að dómurinn verði til þess að fólk átti sig almennt á því að ólögmætt sé að skiptast á kvikmyndum, tónlist og forritum á netinu án heimildar rétthafa.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira