Samherjar Gunnars vilja að hann hætti 11. júní 2009 06:00 Fallvaltur Gunnar Birgisson hefur legið undir ámæli eftir að viðskipti bæjarins við dóttur hans komust í umræðuna.Fréttablaðið / hari
Framtíð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Kópavogi veltur á því hvort Gunnar Birgisson fæst til að hætta sem bæjarstjóri. Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, tjáði Gunnari þetta á fundi þeirra í gærmorgun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Heimildir herma að framsóknarmenn í Kópavogi séu tilbúnir til að sættast á þá niðurstöðu að Gunnar standi upp úr bæjarstjórastólnum fyrir annan fulltrúa Sjálfstæðisflokksins en sitji þó áfram sem bæjarfulltrúi. Gunnar hefur hins vegar þvertekið fyrir að það sé möguleiki og því eru miklar líkur á að upp úr samstarfinu slitni. Í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi vildi Gunnar ekki gefa út neinar yfirlýsingar en sagðist opinn fyrir því að setja á fót viðræðuhóp um málið milli stjórnarflokkanna. Heimildir Fréttablaðsins herma að aðrir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins séu alls ekki ánægðir með tugmilljónaviðskipti bæjarins við dóttur Gunnars frekar en aðrir bæjarfulltrúar. Niðurstöðurnar í skýrslu Deloitte frá því á þriðjudag skipti þar ekki höfuðmáli, enda þyki hún hroðvirknislega unnin. Það sé einfaldlega ekki siðferðislega rétt að dóttir bæjarstjórans vinni í svo ríkum mæli fyrir bæinn. Samherjar Gunnars í bæjarstjórnarflokknum telja rétt að hann víki til að halda lífi í meirihlutanum, samkvæmt heimildum blaðsins. Hann sé hins vegar kjörinn fulltrúi og verði ekki vikið úr bæjarstjórn gegn vilja sínum. Auk þess hangi meirihlutinn á einum manni, sem þýðir að Gunnar getur látið af stuðningi við hann ef ákveðið verður að reka hann úr starfi bæjarstjóra. Boltinn sé því alfarið hjá Gunnari sjálfum. Einn bæjarfulltrúa flokksins orðaði það þannig í samtali við blaðið að það væri djöfullegt ef Gunnar myndi taka sína persónu fram yfir flokkinn. Fyrirhugað er að fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins fundi eftir helgi. Heimildarmaður blaðsins úr Sjálfstæðisflokknum segir að Gunnar hafi komið sínu fólki vel fyrir í fulltrúaráðinu og eigi vísan stuðning þar. Fulltrúaráð Framsóknarflokksins í bænum mun hittast á fundi í dag. „Við munum mæla fyrir því að Sjálfstæðisflokknum verði gefið ráðrúm til að leggja fram lausn, sem við munum síðan taka afstöðu til,“ segir Gestur Valgarðsson, formaður framsóknarfélagsins í bænum. Engin tímamörk verði gefin fyrir það andrými en ljóst sé að lausn málsins þolir ekki langa bið.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sjá meira