Krefjast úrbóta á Vesturlandsvegi Breki Logason skrifar 11. júní 2009 12:06 Marta Guðjónsdóttir formaður hverfaráðs á Kjalarnesi.
Íbúasamtökin á Kjalarnesi ætla að grípa til aðgerða við Vesturlandsveg seinni partinn á morgun. Um táknræn mótmæli verður að ræða en íbúar eru orðnir langrþeyttir á aðgerðarleysi á Vesturlandsvegi. Tveir litlir drengir urðu næstum undir flutningabíl þar í síðustu viku og var það dropinn sem fyllti mælinn. Marta Guðjónsdóttir formaður hverfaráðs Kjalarness hefur boðað til íbúafundar annað kvöld og vill að samgöngunefnd Alþingis láti sjá sig. Marta segir að Vesturlandsvegur sé einhver fjölfarnasti vegur landsins þar sem mikið af flutningabílum fari á degi hverjum. Búist sé við að umferð þungaflutninga aukist á næsta ári í tengslum við álverið á Grundartanga. Marta segir að að úrbæturnar snúist fyrst og fremst um undirgöng undir veginn og einhverskonar hraðatakmarkanir. „Þegar ég heyrði af þessu atviki í síðustu viku ákvað ég að boða strax til íbúafundar í Klébergsskóla. Ég boðaði samgönguráðherra og samgöngunefnd Alþingis en ráðherra hefur sagst ekki koma. Ég vona að samgöngunefnd láti sjá sig," segir Marta. Málið er orðið ansi heitt á Kjalarnesi en krakkarnir sem þar búa þurfa oftar en ekki að fara yfir götuna til þess að hitta vini sína. Þeri sem urðu vitni að atvikinu í síðustu viku segja að sáralitlu hafi munað að flutningabíllinn hefði ekið á drengina tvo. „Svörin sem við höfum fengið frá Vegagerðinni og Samgönguráðherra eru að málið sé ekki klárt frá borginni, það er bara ekki rétt." Marta furðar sig á því að á sama tíma og tilkynnt sé um Vaðlaheiðagöng fyrir marga milljarða sé ekkert gert fyrir íbúa á Kjalarnesi. „Þetta er einn fjölfarnasti vegur landsins og við hér á höfuðborgarsvæðinu fáum mun minna vegafé samanborið við landsbyggðina, við það verður ekkert unað lengur." Marta hvetur sem flesta íbúa til þess að mæta á fundinn í Klébergsskóla klukkan 20:00 annað kvöld og um leið vonar hún að Samgöngunefnd láti sjá sig og ræði þetta mikilvæga málefni.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Sjá meira