Innlent

Síld fyllir höfn Vestmannaeyja

Höfnin í Vestmannaeyjum fylltist af síld í gærmorgun í annað skiptið á tæpum mánuði.

Svo mikið magn var af síld að hana mátti bæði sjá og heyra að sögn Kristjáns Eggertssonar hafnarvarðar. „Síldin sást vel í yfirborðinu og svo sporðaköst sem framkölluðu nokkurs konar vatnsnið."

Í desemberlok fylltist höfnin af síld og við sýnatöku greindist sýking í helmingi tilvika að sögn Vals Bogasonar, útibússtjóra Hafrannsóknastofnunar í Vestmannaeyjum. Bjóst hann við að tekið yrði sýni á ný. - sdg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×