Innlent

Staðnir að verki - erilsöm nótt hjá lögreglu

Erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, að sögn varðstjóra. Tveir menn voru handteknir í annarlegu ástandi þegar þeir reyndu að brjóta sér leið inn á veitingastað við Hagamel um eittleytið í nótt. Mennirnir verða yfirheyrðir síðar í dag.

Þá var lögreglu tilkynnt um fjögur líkamsárásarmál en þau voru öll minniháttar. Einn ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×